Leikjum kvöldsins er nú lokið. Haukar sigruðu KFÍ 88-68 og komast í 8. sætið. KR sigraði Snæfell 116-93 og endar því í öðru sæti. Fjölnismenn lögðu ÍR og bíða nú lokatalna af Ásvöllum og treysta á að KFÍ nái að sigra Hauka. Í Keflavík lögðu heimamenn Grindavík og eins og staðan er í DHL höllinni er Keflavík í þriðja sæti og Grindavík í fjórða. Njarðvík sigraði Tindastól 96-84 og í Hveragerði unnu heimamenn Stjörnuna 74-65.
Eftirfarandi lið mætast í úrslitakeppninni:
Snæfell – Haukar
KR – Njarðvík
Keflavík – ÍR
Grindavík – Stjarnan
Úrslitakeppnin hefst á fimmtudag í næstu viku.
Mynd: [email protected]





