HomeFréttirHasar á Ásvöllum, 8 reknir út

Hasar á Ásvöllum, 8 reknir út

Það má með sanni segja að það hafi veði hasar á Ásvöllum í kvöld. Snemma í fjórða leikhluta brutust út slagsmál milli Davíðs Páls Hermannssonar leikmanns Hauka og Darco Milisevic úr KFÍ. Leikmenn þustu inn af báðum bekkjum og eftir að hafa skoðað myndbandsupptöku af atburðunum var 8 leikmönnum vísað af velli.

 
Davíð Páll og Darco fengu brottrekstur fyrir slagsmál en Óskar Ingi Magnússon, Gerald Robinson og Steinar Aronsson úr Haukum ásamt Ingvari Viktorssyni, Nebojsa Knezevic og Carl Josey úr KFÍ fyrir að koma inn á völlinn af varamannabekknum.

Það verður því nóg að gera hjá Aga- og úrskurðarnefnd á næsta fundi og gæti farið svo að Hauka vanti 4 leikmenn í fyrsta leik liðsins gegn Snæfell í 8 liða úrslitum.

[email protected]

 
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson – Gerald Robinson gæti misst af fyrsta leiknum við Snæfell í úrslitakeppninni
Fréttir
- Auglýsing -