HomeFréttirEinar Árni: Verður fjör eins og alltaf þegar þessi lið mætast

Einar Árni: Verður fjör eins og alltaf þegar þessi lið mætast

 
,,Við sögðum fyrir leikinn í dag að við tækjum bara það sem að höndum bæri og ég reyndar sagði við góða vini mína að KR og Keflavík myndu vinna sína heimaleiki og að við fengjum KR í úrslitakeppninni,“ sagði Einar Árni Jóhannsson annar tveggja þjálfara Njarðvíkinga sem eftir sigur á Tindastól í kvöld mæta bikarmeisturum KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild karla.
,,Það verður bara fjör eins og alltaf þegar þessi lið mætast,“ sagði Einar sem hafði fram að tefla Brenton Birmingham í Njarðvíkurliðinu í kvöld en kappinn er mættur aftur í Njarðvíkurbúning. ,,Hann spilaði í vetur undir stjórn okkar Frikka í Njarðvík B fyrr í vetur og hefur verið duglegur að æfa undanfarið, bæði með B-liðinu og svo sjálfur undanfarnar vikur og hefur verið að melta þetta hvort hann ætti ekki að klára ferilinn í grænu,“ sagði Einar en hvaða þýðingu hafði þessi sigur Njarðvíkinga á Tindastól í kvöld, hann hafði enga þýðingu á stöðu Njarðvíkinga í deildinni en gerði hann eitthvað fyrir leikmannahópinn og þau átök sem framundan eru?
 
,,Töflulega hafði hann enga þýðingu, fyrir okkur höguðum við undirbúningnum þannig að vel var tekið á því á æfingum og þessi leikur var enn ein æfingin í viðbót til þess að gíra okkur upp fyrir úrslitakeppnina. Menn lögðu sig fram og tóku vel á því en taflan var ekkert til umræðu í þessum leik svo spennan fyrir okkur var að vita hvernig aðrir leikir fóru,“ sagði Einar og framundan er nýtt mót, úrslitakeppnin sjálf sem allir bíða nú spenntir eftir.
 
,,Við erum að fara að mæta bikarmeisturum KR sem hafa verið ofboðslega sannfærandi í vetur og margir telja að þeir séu með besta Bandaríkjamanninn í deildinni og Marcus Walker hefur svo sannarlega verið frábær. Pavel er jafnan talinn langbesti maður deildarinnar og með þrefalda tvennu oftar en ekki og svo hefur KR bara líka fullt af löxum með Hregga að láni úr ,,gettóinu“ Fannar, Brynjar og þetta er ofboðsleg reynsla og gæði sem finnast í þessu KR liði svo verkefnið er erfitt.“
 
Fréttir
- Auglýsing -