HomeFréttirHaukur í byrjunarliðinu og Maryland komst áfram

Haukur í byrjunarliðinu og Maryland komst áfram

 
Úrslitakeppnin í ACC riðli bandarísku háskóladeildarinnar í körfuknattleik er hafin og í nótt var Haukur Helgi Pálsson á ferðinni með Maryland. Leikurinn var sögulegur fyrir þær sakir að Haukur var í byrjunarliði Maryland. Risavaxið skref hjá Fjölnismanninum unga sem er á sínu fyrsta ári hjá einum þekktustu körfuboltaháskólum heims. Þá er ljóst hverjir verða andstæðingar Maryland í næstu umferð, sjálfir Duke!
Maryland lagði North Carolina State í nótt 75-67 en Maryland leiddi allan leikinn, 31-18 í hálfleik og létu svo forystuna aldrei af hendi. Haukur lék í 20 mínútur og skoraði 5 stig en þau komu öll í fyrri hálfleik en hann var einnig með 3 fráköst og 1 stoðsendingu. Eitthvað var tölfræðin misskráð í leiknum því Haukur varði einu sinni skot með miklum tilþrifum og kemur það ekki fram á tölfræðiblaðinu.
 
Eins og fyrr segir mætir Maryland hinu geysisterka liði Duke í næstu umferð en það eru 8-liða úrslit riðilsins. Maryland hefur unnið 19 leiki í vetur og tapað 13 en Duke luku keppni í 2. sæti ACC riðilsins og hafa unnið 27 leiki í vetur og tapað 4 en Maryland hefur ekki tekist að leggja Duke að velli svo Haukur og félagar fá ærið verkefni í næstu umferð.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -