HomeFréttirRýnt í regluverkið í kjölfar meintra hópslagsmála

Rýnt í regluverkið í kjölfar meintra hópslagsmála

Mikið hefur verið rætt og ritað um „hópslagsmál“ í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla í gærkvöldi, þar sem 8 leikmönnum var vísað af velli. Vilja margir meina að einhverjir eða allir sem komu af bekkjunum hafi komið til að stilla til friðar í slagsmálum Davíðs Páls Hermannssonar og Darco Milosevic og því eigi ekki að refsa þeim.

 
Karfan.is hefur rýnt í regluverkin sem um þetta fjalla. Í leikreglum FIBA frá 2010 sem eru þær reglur sem dæmt er eftir á Íslandi stendur í grein 39.2.1 Substitutes, excluded players or team followers who leave the team bench area during a fight, or during any situation which may lead to a fight, shall be disqualified.Á íslensku hljómar þetta einhvern vegin svona Varamenn, leikmenn sem hlotið hafa fimm villur eða aðrir sem fylgja liði og yfirgefa varamannabekk á meðan á slagsmálum stendur, eða á meðan möguleiki er á slagsmálum skal vikið af velli.

Í reglugerð um Aga- og úrskurðarnefnd, sem mun taka fyrir kærur dómara leiksins stendur í grein 13.c Sé leikmanni vísað af leikvelli vegna tveggja óíþróttamannslegra villna, tveggja tæknivillna eða hafi honum verið vísað af velli fyrir að hafa yfirgefið svæði varamanna við slagsmál, eða aðstæður sem leitt gætu til slagsmála, sem hann að öðru leiti tók ekki þátt í, skal viðkomandi ekki úrskurðaður í leikbann ef um er að ræða fyrstu brottvísun leikmannsins á tímabilinu.

Sé það rétt að leikmenn hafi komið af bekknum til að stilla til friðar og ekki tekið þátt í slagsmálum ætti Aga- og úrskurðarnefnd því að vera í lófa lagið að dæma þá 6 sem komu af bekkjunum ekki í bann.

En nefndin á þó eftir að fara yfir málið og verður dómur ekki upp kveðinn hér.

[email protected]

Mynd: Tomasz Kolodziejski – [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -