HomeFréttirKarfan TV: Heiður að þjálfa þessa stráka

Karfan TV: Heiður að þjálfa þessa stráka

 
Tilfinningarnar voru blendnar í Dalhúsum í gærkvöldi þegar Fjölnismenn stöðvuðu sjóðheita ÍR-inga og vonuðust til þess að komast fyrir vikið inn í úrslitakeppnina. Haukar gerðu þessar vonir Fjölnis að engu en Örvar Kristjánsson þjálfari Fjölnis kvað það heiður að hafa fengið að þjálfa ungt og efnilegt lið Fjölnis í vetur.
Gunnar Sverrisson var ekki kátur með tap sinna manna í ÍR enda höfðu Breiðhyltingar verið á góðu róli fyrir leikinn í gær. Hann sagði síðan Fjölnismenn of góða til þess að hafa ekki náð sæti í úrslitakeppninni.
 
Fréttir
- Auglýsing -