HomeFréttirYfirlýsing frá leikmanni Hauka

Yfirlýsing frá leikmanni Hauka

 
 
Davíð Páll Hermannsson leikmaður úrvalsdeildarliðs Hauka í körfuknattleik hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í leik Hauka og KFÍ í lokaumferð Iceland Express-deildarinnar í körfuknattleik sem háður var á Ásvöllum í gærkvöld. MBL.is birti þessa yfirlýsingu leikmannsins í dag:
 
Yfirlýsingin er á þessa vegu:
 
„Ég, Davíð Páll Hermannsson, biðst innilegrar afsökunar á óíþróttamannslegri framkomu minni í leik Hauka og KFÍ í gærkvöldi.
 
Hvorki deildin, leikmenn liðanna, dómarar né áhorfendur eiga að þurfa að horfa upp á slíkt agaleysi af minni hálfu.
 
Ég ábyrgist að þetta mun ekki koma fyrir aftur og bið aftur alla hlutaðeigandi afsökunar.“
 
Davíð Páll Hermannsson.
 
Fréttir
- Auglýsing -