HomeFréttirMikilvægur sigur hjá Loga og félögum

Mikilvægur sigur hjá Loga og félögum

 Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings unnu mikilvægan sigur í kvöld á heimavelli gegn Jamtland 80:76.  Sigurinn í kvöld sendi Solna í 5. sæti, einu sæti fyrir ofan Uppsala lið Helga Magnússonar sem eiga hinsvegar leik til góða. Karfan.is sendi mann á leikinn að þessu sinni.
 Logi átti prýðis leik að þessu sinni og setti niður 14 stig, en fékk afar lítin frið frá varnarmönnum Jamtland sem fengu greinilega skýr skilaboð fyrir leik að stoppa stigahæsta mann Solna.  Eftir leik var fögnuður mikill hjá þeim 3000 áhorfendum sem mættir voru á leikinn. Logi gaf sér góðan tíma eftir leik til að gefa ungum stuðningsmönnum eiginhandaráritanir og flissandi 15 ára stúlkur létu eins og að Bítlarnir væru mættir á svæðið.  "Your my idol" heyrðist meira segja frá einni þeirra.
 
Viðtal eftir leik mun birtast von bráðar á netið. 
 
 
Mynd/Texti: [email protected]
Fréttir
- Auglýsing -