HomeFréttirÞór í bílstjórasætinu eftir sigur á Breiðablik (Umfjöllun)

Þór í bílstjórasætinu eftir sigur á Breiðablik (Umfjöllun)

 
Þórsarar báru sigurorð af Breiðabliki, 81-72 í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni um laust sæti í Iceland Express deildinni. Heimamenn byrjuðu leikinn betur en heimamenn og voru lengst af fyrsta fjórðung með yfirhöndina. Gestirnir úr Kópavoginum náðu þó undirtökunum í öðrum fjórðungn og leiddu leikinn allt til fjórða og síðasta fjórðungs. Þórsarar settu í annan gír í fjórða leikhluta og með góðri vörn náðu þeir að snúa leiknum sér í hag og landa góðum 81-72 sigri og leiða því einvígið 1-0. 
Þórsarar byrjuðu leikinn betur en gestirnir og voru því skrefinu á undan gestunum á upphafsmínútunum. Varnir liðanna voru þó ekki upp á sitt besta í fyrri hálfleik og sóknarleikurinn var að sama skapi ekki nógu góður. Það virtist vera eitthvað stress í heimamönnum sem misnotuðu þrjú auðveld sniðskot. Að auki gekk lítið á vítalínunni hjá heimamönnum sem voru einungis með 20% nýtingu af línunni í fyrri hálfleik. Aftur á móti dró Þorsteinn Gunnlaugsson vagninn fyrir gestina í fyrri hálfleik og setti meðal annars 14 af 19 stigum sínum í fyrri hálfleik. Smá saman náðu blikarnir betri takti í sóknarleik sínum sem og varnarleiknum. Með góðri rispu í lok fyrri hálfleiks náðu gestirnir forystu og leiddu leikinn með þremur stigum þegar liðing gengu til búningsklefa, 34-37.
 
Bikarnir byrjuðu síðari hálfleik af miklum krafti og gaf Arnar Pétursson tóninn með því að smella einum þristi niður og voru gestirnir fljótt komnir með sjö stiga forystu áður en Sigurður Grétar aðstoðarþjálfari Þórs tók leikhlé. Blikarnir virtust vera á góðri siglingu og leiddu leikinn lengi vel með 10 stigum. Á meðan gekk lítið hjá heimamönnum. Sóknarleikurinn var afar stirrður, knötturinn fékk ekki að ganga nógu vel á milli manna og menn alls ekki að taka nógu góð skot. Konrad Tota sem setti niður 14 stig í fyrri hálfleik var ekki jafn áberandi í þeim síðari sem og þeir félagar Ólafur Torfason og Óðinn Ásgeirsson. Jafnframt áttu gestirnir frekar auðvelt með að ná í fráköst þar sem heimamenn stigu einfaldlega ekki nógu vel út. Undir lok þriðja leikhluta hleyptu gestirnir heimamönnum þó aftur inn í leikinn með því að klúðra þremur auðveldum sniðskotum sem heimamenn nýttu sér með því að keyra strax í bakið á þeim og fengu þar af leiðandi auðveld stig. Skyndilega leiddu gestirnir leikinn einungis með fimm stigum, 52-57 fyrir síðasta fjórðung.
 
Heimamenn settu í annan gír í síðasta fjórðung og skyndilega fór vörnin að smella saman. Smá saman náðu heimamenn aftur undirtökunum í leiknum. Siggurður Grétar aðstoðarþjálfari Þórs virtist taka nokkra áhættu með að láta byrjunarliðið spila nánast allan síðasta fjórðunginn en þolinmæði og skynsemi heimamanna skilaði sér í því að þeir leituðu að betri skotum. Það var ekki síst frammistaða Dimitar Petrushev sem skilaði þessum góða spretti heimamanna í síðasta fjórðungnum. Dimitar setti niður 11 af 21 stigum sínum í fjórða leikhluta, tók mikilvæg varnarfráköst sem og stýrði sóknarleiknum af mikilli skynsemi. Á síðustu mínútum leiksins voru heimamenn ávallt skrefinu á undan gestunum sem reyndu hvað sem þeir gátu til að koma til baka en réðu einfaldlega ekkert við varnarleik heimamanna. Með skynsemi og góðum varnarleik náðu heimamenn að landa afar mikilvægum 81-72 sigri og hafa því náð 1-0 forystu í einvíginu.
 
Atkvæðamestir heimamanna: Dimitar Petrushev 21 stig, Konrad Tota 21, Wesley Hsu 14, Ólafur Torfason 13 (10 fráköst), Óðinn Ásgeirsson 10, Hrafn Jóhannesson 2
 
Atkvæðamestir gestanna: Þorsteinn Gunnlaugsson 19 stig (13 fráköst), Steinar Arason 12, Nick Brady 11 stig, Arnar Pétursson 9, Aðalsteinn Pálsson 8, Atli Gunnarsson 7, Rúnar Pálmarsson 6
 
 
Mynd/ Rúnar Haukur Ingimarsson
 
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson
Fréttir
- Auglýsing -