Það var mikil eftirvænting fyrir leiknum sem leikinn var í Fjósinu Borgarnesi í gærkvöld þegar Skallagrímur fékk Valsmenn í heimsókn. Fyrsti leikurinn í undanúrslitum um laust sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur. Skallagrímur hafði unnið báða leikina sem þessi lið spiluðu í vetur en þeir telja víst ekkert þegar er komið í þessa viðureign.
Það var boðið uppá mikinn hraða í byrjun leiks. Skallar skoruðu fyrstu tvö stigin eftir að bæði lið voru búinn að reyna sitthvora sóknina sem gengu ekki upp. En Valsmenn svöruðu þó fljótt og sóttu grimmt að Sköllunum. Áður en menn vissu af voru Valsmenn komnir í 8-18. Skallar voru engan veginn að finna sig í sókninni þótt vörnin væri þokkaleg, Valsmenn hittu bara úr nánst öllum skotum sem þeir tóku. Pálmi þjálfari sendir þá baráttuhundinn Finn Jóns og stigamaskínuna Kristján inn á völlinn. Við það breyttist leikurinn aðeins, menn fóru að hitta og vörnin varð grimmari. Finnur Jóns var samt fljótt kominn í villuvandræði og fór aftur á tréverkið. Skallar létu það lítið trufla sig, allavega Kristján sem setti í tvær þriggjastiga í röð og kom Sköllum í 20 -26. Valsmen skoruðu þó síðustu stigin í fyrsta leikhlutanum 20-28.
Skallar byrjuðu annan leikhlutann að krafti, Flake stal boltanum og komst í auðvelt sniðskot. Valsmenn misstu svo bolta frá sér. Kristján nýtti sér það og skoraði þrist 25-28. Valsmenn svöruðu þó fljótt með þrist til baka. Sowa var sterkur og svaraði um hæl með góðri körfu og fiskaði villu að auki 28-31. En Valsmenn hittu vel meðan skot Skallana vildu bara engan veginn fara ofan í. Þegar staðan var orðin 28-40 var Pálma þjálfara nóg boðið og tók leikhlé. Við það komu Skallar aðeins til baka og náðu að minnka stöðuna aðeins 32-40. En Valsmenn höfðu ábyggilega komið við hjá flugbjörgunarsveitinni þegar þeir lögðu af stað frá Hlíðarenda og fengið lánaðan einhvern fluggír því hver boltinn á fætur öðrum fór ofan í hjá þeim, sama hvað Skallar spiluðu stíft á þá. Ekki bætti úr skák fyrir Skallana þegar Flake fékk tæknivillu og sína 4 villu fyrir að kvarta yfir að fá ekki neinar villur dæmdar á Valsmenn inn í teig. Staðan í hálfleik 40-55 Valsmönnum í vil.
Skallar komu þó sterkir til baka í þriðja leikhluta þótt mikið hafi blásið á móti þeim í fyrri hálfleik. Stuðningurinn af pöllunum hafði sitt að segja. Halldór byrjaði á því að skora og fiska villu að auki og Hafþór kom svo með þrist fljótlega eftir það, 46-55. Valmenn voru samt ennþá á smá flugi og svöruðu strax með tveimur körfum, 46-60. Hafþór var ekkert á þeim buxunm að gefast upp heldur reif upp stemninguna og svaraði Valsmönnum með fullum hnefunum og minnkaði muninn í 50-60. Valsmenn tóku leikhlé, ætluðu sér ekkert að leyfa Sköllunum að komast á neitt flug. Það gekk þó ekki upp hjá Völsurum að drepa niður stemningu Skallanna. Því hún jókst jafnt og þétt bæði á vellinum og upp í stúku. Staðan eftir þriðja leikhluta 70-74.
Liðin byrjuðu frekar jafnt í fjórða og síðasta leikhlutanum. Valsmenn komust þó aftur á flug, juku muninn í 10 stig, 74-84. En Skallar gáfust ekki upp þótt fantabrögðum væri beitt sem dómarar leiksins tóku ekki eftir, heldur minnkuðu muninn í 4 stig 84-88. Síðustu 2 mínuturnar sem eftir lifðu leiks voru æsispennandi og mikil taugaspenna í húsinu allavegana hjá greinarhöfundi. Valsmenn náðu að auka forystuna í 7 stig þegar um tæpa mínuta var eftir 86-93. En Skallar börðust eins og ljón og minnkuðu muninn í 2 stig þegar 14 sek voru eftir 91-93 og allt gat skéð. Skallar brutu á Valsmönnum sem fóru á vítalínuna, þeir skoruðu þó bara úr öðru skotinu 91-94. Skallar fengu svo tvær tilraunir til að jafna leikinn en skotin voru erfið. Valsmenn kláruðu svo leikinn á vítalínuni þegar 4 sek voru eftir 91-96 og staðan því 1-0 í einvíginu Val í vil.
Stigahæstu menn hjá Skallagrím voru Mateuz Zowa með 20 stig-19 fráköst-2 varinn skot og 2 stolna bolta—Hafþór með 20 stig-7 fráköst-5 stoðsendingar og 3 stolna bolta—Kristján Andrésson með 17 stig og 4 fráköst.—Halldór G Jónsson með 16 stig og 3 stoðsendingar.—Darrell Flake með 16 stig 7 fráköst og 2 varinn skot.
Hjá Val voru Calvin Wooten með 35 stig 8 stoðsendingar og 6 fráköst—Philip Perre með 25 stig og 10 fráköst
Umfjöllun: Ebbi





