Úrskurða aganefndar KKÍ er að vænta næstkomandi þriðjudag í málum Margrétar Köru Sturludóttur leikmanns KR, sem sló til leikmanns Hauka, og svo í máli Hauka og KFÍ þar sem átta leikmenn voru reknir úr húsi. Margrét Kara var send úr húsi í viðureign Hauka og KR í síðustu umferð Iceland Express deildar kvenna og í síðustu umferð í Iceland Express deild karla brutust út slagsmál millum leikmanna Hauka og KFÍ.
Úrskurða í þessum tveimur málum er að vænta á þriðjudag og því verður Margrét Kara í liði KR sem tekur á móti Snæfell í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst kl. 16:00 í dag.





