HomeFréttirÖruggt hjá Sundsvall á útivelli

Öruggt hjá Sundsvall á útivelli

 
Sundsvall Dragons áttu ekki í vandræðum með Boras Basket í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Lokatölur leiksins voru 74-95 toppliði Sundsvall í vil. Jakob Örn skoraði 14 stig í leiknum fyrir Sundsvall en Hlynur daðraði við þrennuna.
Hlynur var með 9 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum en auk stiganna 14 var Jakob með 3 fráköst og 3 stoðsendingar. Sundsvall er deildarmeistari og þeim verður því ekki haggað úr toppsætinu en þar tróna þeir með 56 stig, 8 stigum á undan næsta liði og aðein tveir deildarleikir eftir.
 
Fréttir
- Auglýsing -