Í dag fær Stjarnan afhentan deildarmeistaratitil sinn í 1. deild kvenna þegar liðið tekur á móti Haukum-b í Ásgarði í Garðabæ kl. 17:00. Þá er leikið í undanúrlsitum í úrslitakeppni 1. deildar karla og báðir leikirnir hefjast kl. 19:15.
Breiðablik 0-1 Þór Akureyri
Liðin mætast í sínum öðrum leik kl. 19:15 í Smáranum í Kópavogi. Ef Þórsarar vinna eru þeir komnir áfram í úrslitaeinvígið en ef Blikar vinna þarf oddaleik fyrir norðan.
Valur 1-0 Skallagrímur
Liðin mætast í sínum öðrum leik kl. 19:15 í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Ef Valsmenn vinna eru þeir komnir áfram í úrslitaeinvígið en ef Skallagrímur vinnur í kvöld þarf oddaleik í Borgarnesi.





