HomeFréttirBúið spil hjá Blikum: Þór mætir Val í úrslitum

Búið spil hjá Blikum: Þór mætir Val í úrslitum

 
Breiðablik tapaði í kvöld fyrir Þór Ak. öðru sinni í undanúrslitum 1. deildar karla, 84-88, og hefur þar með lokið keppni í vetur meðan Þórsarar halda áfram í úrslit keppninnar hvar þeir mæta Valsmönnum frá Hlíðarenda.
Mörgum Kópavogsbúum leist ekki vel á blikuna hjá Blikunum í byrjun vegna þess að besti leikmaður liðsins í vetur, Þorsteinn Gunnlaugsson, var fjarri góðu gamni vegna veikinda. Án hans náðu Blikar þó góðum leik og hefðu átt að tryggja sér oddaleik á þriðjudaginn með meiri skynsemi á lokaandartökunum. Byrjunarliðið hjá þeim grænu var: Arnar Péturs, Aðalsteinn P, Nick, Atli og Snorri. Hjá Þórsurum báru sexmenningarnir Wesley Hsu, Ólafur, Óðinn, Dimitar Petrushev og Konrad Tota hitann og þungann í leik liðsins.
 
Þórsarar hófu leikinn af miklum móð og náðu verðskuldaðri forystu 0-6. Blikar komu sér hinsvegar hægt og rólega inn í leikinn, léku lengi vel 2-3 svæðisvörn og 2-2-1 pressu eftir skoraða körfu. Þetta gaf góða raun og í lok 1. leikhluta náðu Kópavogspiltar forystunni í fyrsta sinn í leiknum, 23-21. og héldu henni allt þar til í fjórða leikhluta.
 
Í upphafi 2. leikhluta var staðan, 29-25, fyrir Blika og héldu þeir uppteknum hætti; þeir pressuðu eftir skoraða körfu og neyddu Þórsara í lélegar sendingar og hirtu svo knöttinn af þeim. Heimamenn keyrðu upp hraðann og juku forskotið á þessum tíu mínútum og var staðan, 50-40, þegar hinir geðþekku Rögnvaldur og Halldór Geir dómarar flautuðu til hálfleiks.
 
Í þriðja leikhluta héldu Blikar uppteknum hætti og má segja að annar og þriðji hluti hafi verið með því betra sem heimamenn hafa sýnt á fjölum Smárans í vetur. Hraðinn var mikill í leik þeirra, gott flæði var í sóknarleiknum og menn að vinna hver fyrir annan. Þórsarar áttu aftur á móti í hinu mesta basli á þessum 20 mínútum en þeim til hróss þá buguðust þeir aldrei og höfðu trú á því að klára verkefnið sunnan heiða og koma sér í úrslitaleikina um laust sæti í efstu deild.
 
Þegar fjórði leikhluti hófst voru Blikar með þægilegt forskot, 74-62. Þá kom frábær kafli hjá gestunum og breyttu þeir stöðunni úr, 74-62, í 76-72. Þá var Sæba, þjálfara Blika, nóg boðið og bað um leikhlé. Þórsarar voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna enda með 45% nýtingu frá henni í leiknum. Aukinheldur settu þeir vítaskotin samviskusamlega niður á lokakaflanum og þetta skilaði þeim sigri.
 
Þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum var staðan 78-75 og ljóst að allt stefndi í hörkuleik. Þórsarar brydduðu upp á 2-3 svæði í vörninni og virtist það rugla Blika í ríminu. Þeir grænklæddu keyrðu ekkert á vörnina og nýttu sér ekki veikleika svæðisvarnarinnar. Hinir norðlensku gestir komust svo yfir í fyrsta sinn síðan í upphafi leiks þegar um 3:44 mínútur voru eftir, 78-79, og bættu um betur með 2 vítaskotum til viðbótar og staðan skyndilega orðin, 78-81, Þórsurum í vil.
 
Steinar Ara lagaði stöðuna fyrir Blika, 80-81, og Arnar Pétursson bætti um betur og kom Blikum yfir, 82-81. Þórsarar geystust í sókn en glutruðu boltanum og Blikar skeiðuðu fram. Í þeirri sókn reyndi Arnar Pétursson 3ja stiga skot sem geigaði og norðanmenn fengu aftur gullið tækifæri á að komast yfir. Það tókst þeim og enn frá vítalínunni þegar Ólafur Torfason setti vítaskotin sín ofan í af öryggi, staðan orðin, 82-83, og tæpar 2 mínútur eftir.
 
Í stöðunni 82-83 vann Arnar Pétursson boltann og virtist eiga auðvelt sniðskot fyrir höndum. Eitthvað fipaðist pilturinn sá og missti boltann úr höndum sér og mistókst að koma Blikum yfir. Enn settu Þórsarar víti niður og núna eftir heldur slysalegt brot hjá Steinari Ara. Staðan, 82-85, og Blikar komnir í þrönga stöðu. Arnar Péturs minnkaði muninn í 84-85 með góðu skoti en enn og aftur fóru norðanmenn á línuna og þrýstu muninum upp í þrjú stig, 84-87. Blikar brunuðu í sókn þegar 25 sekúndur voru eftir og vakti það athygli að Sæbi skyldi ekki setja fleiri skyttur inn á völlinn. Hann bað um leikhlé þegar um 9 sekúndur lifðu leiks og lagði á ráðin. Ráðabrugg hans heppnaðist ekki að þessu sinni og hrósuðu gestirnir sigri, 84-88, og fögnuðu mikið í leikslok.
 
Blikar hljóta að naga handarbök sín. Þrátt fyrir að Þorsteins nyti ekki við léku þeir skínandi vel á köflum og hefðu átt að tryggja sér oddaleikinn. Það tókst því miður ekki og nú er ljóst að tímabilið er búið og hægt að fara að hugsa um næsta vetur í næst efstu deild.
 
Þórsarar unnu einvígið 2-0 og koma til með að mæta Valsmönnum sem einnig unnu sína rimmu við Skallagrím 2-0. Það verður fróðleg viðureign og ljóst að þar mætast stálin stinn.
 
 
Heildarskor:
 
Breiðablik: Aðalsteinn Pálsson 22/6 fráköst, Arnar Pétursson 13/7 stoðsendingar/6 stolnir, Atli Örn Gunnarsson 12/9 fráköst/5 stolnir/3 varin skot, Steinar Arason 12/7 fráköst, Ágúst Orrason 8, Snorri Hrafnkelsson 8, Nick Brady 4/4 fráköst, Hákon Bjarnason 3, Rúnar Pálmarsson 2, Ívar Örn Hákonarson 0, Hraunar Karl Guðmundsson 0, Gústaf Arnar Davíðsson 0.
 
Þór Ak.: Konrad Tota 22/10 fráköst, Wesley Hsu 18, Ólafur Torfason 18/13 fráköst/6 stoðsendingar, Dimitar Petrushev 16/7 fráköst, Óðinn Ásgeirsson 12/9 fráköst/6 stoðsendingar, Hrafn Jóhannesson 2, Vic Ian Damasin 0, Benedikt Eggert Pálsson 0, Sindri Davíðsson 0, Sigmundur Óli Eiríksson 0, Baldur Már Stefánsson 0.
 
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Halldór Geir Jensson
 
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski
 
Umfjöllun: Gylfi Freyr Gröndal
Fréttir
- Auglýsing -