Njarðvíkingar eru komnir í undanúrslit Iceland Express deildar kvenna eftir öruggan 83-55 sigur á Haukum. Njarðvík vann því einvígið 2-0. KR fór loks með sigur af Hólmi í Breiðafjarðarhöllinni þegar rafmagn komst aftur á eftir um 15 mínútna töf, lokatölur 76-84 KR í vil.
Úrslit kvöldsins
Njarðvík 83-55 Haukar
Shayla Fields gerði 24 stig og tók 7 fráköst í liði Njarðvíkinga, Julia Demirer bætti við 16 stigum og 8 fráköstum. Hjá Haukum var Ragna Margrét Brynjarsdóttir atkvæðamest með 11 stig og 8 fráköst.
Njarðvík vann einvígið 2-0.
Snæfell 76–84 KR
Monique Martin gerði 20 stig og tók 10 fráköst í liði Snæfells en hjá KR var Chazny Morris með 25 stig og 9 fráköst.
Hamar og Njarðvík mætast því í undanúrslitum og svo Keflavík og KR. Hamar og Keflavík munu hafa heimaleikjaréttinn í undanúrslitaviðureignunum.





