Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem LA Lakers lögðu Orlando Magic í Staples Center og Miami Heat völtuðu yfir San Antonio Spurs og var sigurinn enn einn áfanginn í því að berja á gagnrýnisröddum sem hafa verið helst háværar undanfarið.
Miami 110-80 San Antonio
Chris Bosh var atkvæðamestur hjá Heat með 30 stig og 12 fráköst. Dwyane Wade bætti svo við 29 stigum og 9 fráköstum. Hjá Spurs var Tony Parker með 18 stig og 5 stoðsendingar. Miami hefur nú unnið þrjá deildarleiki í röð.
Lakers 97-84 Orlando
Pau Gasol var stigahæstur í liði Lakers með 23 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar. Kobe Bryant og Lamar Odom bættu svo báðir við 16 stigum og Andrew Bynum gerði 10 stig og tók 18 fráköst. Dwight Howard var sem fyrr atkvæðamestur í liði Orlando með 22 stig og 15 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
New Jersey 88-79 Boston
Washington 89-116 Oklahoma
Memphis 105-82 LA Clippers
New Orleans 103-114 Denver
Houston 95-93 Phoenix
Utah 112-107 Philadelphia
Sacramento 129-119 Golden State
Mynd/ Wade og Heat eru byrjaðir að leggja toppliðin.





