Aga- og úrskurðanefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur tekið fyrir tvö mál sem komu inn á borð nefndarinnar í síðustu viku. Annarsvegar var um að ræða atvik í leik Hauka og KR í Iceland Express-deild kvenna og annarsvegar atvik í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express-deild karla. www.kki.is greinir frá.
Niðurstaða nefndarinnar:
Agamál nr. 15/2010-2011
„Hin kærða, Margrét Kara Sturludóttir, skal sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KR í Iceland Express deild kvenna sem leikinn var 9. mars 2011“.
Agamál nr. 16/2010-2011
„Hinn kærði, Davíð Páll Hermannsson, skal sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011“.
„Hinn kærði, Darco Milosevic, skal sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011“.
„Hinn kærði, Nebojsa Knezevic, skal sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011“.
Carl Josey, Gerald Robinson, Ingvar Viktorsson, Óskar Magnússon og Steinar Aronsson hlutu sömu úrskurðarorð:
„Hinn kærði skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011“.






