Árni Ragnarsson og félagar í Alabama-Huntsville Chargers eru komnir í 8-liða úrslit í 2. deild í NCAA háskólakeppninni í körfubolta. Keppni í ,,South Region“ hlutanum fór fram á heimavelli Alabama sem í fyrsta sinn í sögu skólans komust í 8-liða úrslit eða ,,Elite Eight.“
Árni kom inn á í fyrstu umferð South Region keppninnar og fékk þá að spreyta sig í eina mínútu þegar Chargers lögðu Clark-Atlatna skólann 77-63. Árni fékk svo ekki mínútur í næstu tveimur leikjum þar sem Chargers höfðu betur gegn Arkansas Tech og nú síðast Stillman 88-81 en tölfræðikerfið ytra virkar þannig að þú kemur ekki fram á leikskýrslu nema þú komir inná í leiknum.
Chargers mæta svo Minnesota St. Mankato í 8-liða úrslitum þann 23. mars.





