Vertíðin er hafin eða eins og margir segja, nýtt mót er hafið í íslenska körfuboltanum. Úrslitakeppnin rúllar af stað og á næstu dögum og vikum fáum við úr því skorið hverjir séu á leið í sumarfrí og hverjir haldi út og komist alla leið. Við ákváðum að kíkja á titlana sem liðin í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla hafa unnið og hver séu þeirra bestu fimm manna lið samkvæmt /- jöfnunni á tölfræðivef KKÍ.
Íslandsmeistaratitlar liðanna í 8-liða úrslitum karla:
Snæfell: 1
KR: 11
Keflavík: 9
Grindavík: 1
Stjarnan: 0
ÍR: 15
Njarðvík: 13
Haukar: 1
Eins og sést hér í töflunni að ofan er Stjarnan eina liðið í úrslitakeppninni sem á eftir að verða Íslandsmeistari.
Bestu 5 manna liðin (tölfræði úr deildarkeppninni):
Snæfell: 99
Sean Burton, Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Emil Þór Jóhannsson, Jón Ólafur Jónsson og Ryan Amoroso.
KR: 78
Pavel Ermolinskij, Marcus Walker, Brynjar Þór Björnsson, Finnur Magnússon og Fannar Ólafsson
Keflavík: 34
Hörður Axel Vilhjálmsson, Valentino Maxwell (farinn), Gunnar Einarsson, Lazar Trifunovic (farinn) og Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Grindavík: 23
Ólafur Ólafsson, Þorleifur Ólafsson, Guðlaugur Eyjólfsson, Páll Axel Vilbergsson og Ryan Pettinella.
Stjarnan: 41
Justin Shouse, Marvin Valdimarsson, Jovan Zdravevski, Renato Lindmets og Fannar Freyr Helgason.
ÍR: 33
James Bartolotta, Sveinbjörn Claessen, Níels Dungal, Kelly Beidler og Nemanja Sovic.
Njarðvík: 16
Lárus Jónsson (farinn), Guðmundur Jónsson, Jóhann Árni Ólafsson, Hjörtur Hrafn Einarsson og Christopher Smith (farinn).
Haukar: 17
Semaj Inge, Sigurður Þór Einarsson, Haukur Óskarsson, Sveinn Ómar Sveinsson og Örn Sigurðarson.
Leikir kvöldsins:
19:15 KR-Njarðvík
19:15 Grindavík-Stjarnan
Leikir annað kvöld í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla
19:15 Keflavík-ÍR
19:15 Snæfell-Haukar
Ljósmynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Það voru Hólmarar sem fögnuðu í fyrra, hverjir verða það í ár?





