Eins og allir körfuknattleiksunnendur hafa vafalaust tekið eftir varð mikill hasar á Ásvöllum í síðustu viku, tvo daga í röð komu upp atvik þar sem leikmenn voru reknir út og aganefnd svo tekið á málinu. Nú hafa Haukar sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og jafnframt birt myndbönd af atvikunum.
Nú áðan greindi Vísir.is svo frá því að María Lind hafi kært Margréti Köru til lögreglunnar og að Haukar hafi áfrýjað dómi aga- og úrskurðarnefndar KKÍ í máli Margrétar Köru sem þeir telji vera of vægan en Margrét Kara var dæmd í tveggja leikja bann.
Yfirlýsinguna og myndbandið má sjá hér á heimasíðu Hauka.
Mynd: [email protected]





