HomeFréttirYngvi: Langt frá því sáttur með frammistöðuna

Yngvi: Langt frá því sáttur með frammistöðuna

 
Valur og Þór hafa bara unnið leiki á útivelli þegar þessi tvö topplið úr 1. deild karla hafa mæst á tímabilinu! Karfan.is ræddi við Yngva Gunnlaugsson þjálfara Vals eftir ósigur sinna manna að Hlíðarenda í gærkvöldi.
,,Já þetta er furðuleg staða en þetta var ekki fallegur körfuboltaleikur, langt því frá. Spennustigið var bara svona, bæði lið voru að tapa allt of mörgum boltum og fyrir augað var þetta bara ömurlegur leikur,“ sagði Yngvi Gunnlaugsson þjálfari Valsmanna eftir að Þór Akureyri jafnaði úrslitaeinvígið 1-1 í 1. deild karla í gærkvöldi.
 
,,Það átti ekki að koma til þess að við þyrftum að taka þriggja stiga skot í lokin til að komast í framlengingu. Við vorum bara ekki að framkvæma sóknina eins og við áttum að gera, menn voru bara ,,sóló“ og þetta var ekki sá leikur sem við höfum spilað í vetur sem hingað til hefur komið okkur svona langt þannig að ég er langt frá því að vera sáttur með frammistöðuna, sérstaklega sóknarlega.“
 
Nú hafið þið unnið tvo leiki fyrir norðan í vetur svo þið eruð ekkert feimnir við að fara norður í oddaleik?
 
,,Nei, alls ekki. Við vorum alveg tilbúnir til að spila þennan annan leik en við þurfum bara að fara yfir þetta, sleikjum sárin og æfing í dag og verðum svo bara klárir í leikinn á miðvikudag. Þá verður bara að koma í ljós hvort að þetta verði ekki aðeins skárri leikur af beggja hálfu.“
 
Mikill atgangur var á lokaspretti leiksins og margir hárreyttu sig í stúkunni, innan vallar og jafnvel víðar. Hvernig blasti lokaspretturinn við Yngva?
 
,,Það var búið að dæma ruðning á okkur trekk í trekk og svo fáum við ekki ruðning á lokasprettinum þegar svo bar undir, Þór fær boltann í staðinn en svona er körfuboltinn. Þetta kemur allt í hring og eigum við þá ekki að segja bara að við fáum vafaatriðin okkar megin fyrir norðan.“
 
Fréttir
- Auglýsing -