Körfuknattleiksdeild KR hefur sent frá sér yfirlýsingu er varðar málefni Margrétar Köru Sturludóttur sem hefur verið kærð til lögreglu eftir atvik sem upp kom í leik Hauka og KR að Ásvöllum í Iceland Express deild kvenna.
Yfirlýsing Körfuknattleiksdeildar KR:
Fyrir helgina birtu fjölmiðlar fréttir af því að leikmaður í körfuknattsliði KR, Margrét Kara Sturludóttir, hefði verið kærð fyrir líkamsárás til lögreglu, fyrir að slá til leikmanns Hauka, í leik liðanna í síðastliðinni viku. Aganefnd KKÍ úrskurðaði Margréti Köru í tveggja leikja bann vegna atviksins. Körfuknattleiksdeild KR unir þeim úrskurði, þó forsendur séu umdeilanlegar.
Um var að ræða pústra í hita leiks. Ekki var með nokkru móti séð að Margrét Kara hafi haft ásetning til að meiða leikmann Hauka. Margrét Kara bað leikmanninn afsökunar að leik loknum.
KR telur fráleitt að um hafi verið að ræða líkamsárás af ásetningi, í lagalegum skilningi. Mál af þessu tagi hafa hingað til verið leyst á grundvelli reglna leiksins og agareglna íþróttahreyfingarinnar. Því harmar KR að kærandi hafi séð tilefni til að leggja fram lögreglukæru. KR er sannfært um sakleysi Margrétar Köru og heitir henni fullum stuðningi.
Reykjavík, 21. mars 2011
f.h. körfuknattleiksdeildar KR
Böðvar E. Guðjónsson formaður
Ljósmynd/ Böðvar E. Guðjónsson formaður KKD KR





