KR jafnaði í kvöld undanúrslitaeinvígið gegn Keflavík í Iceland Express deild kvenna. Staðan er jöfn, 1-1, en Íslandsmeistarar KR skelltu í lás í vörninni í síðari hálfleik þar sem Keflvíkingar skoruðu aðeins 26 stig. Nýji leikmaðurinn Melissa Jeltema fór mikinn í sínum fyrsta leik fyrir KR en hún kom til landsins í gær til að leysa Chazny Morris af hólmi sem er með rifinn liðþófa. Melissa var besti maður vallarins í kvöld með 25 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar.
Melissa Jeltema tók ekki langan tíma í að komast á blað fyrir KR og kom röndóttum í 4-0. Keflvíkingar rönkuðu þá við sér og kýldu saman 13-0 áhlaup og Hrafn Kristjánsson tók leikhlé fyrir KR. Heimakonur fengu greinilega vel valin orð í eyra í leikhléinu því við tók 16-0 kafli sem teygði sig inn í annan leikhluta. KR jafnaði metin í 13-13 og þannig stóðu leikar eftir þann fyrsta en þær létu ekki staðar numið heldur komust í 20-13 í öðrum leikhluta áður en Pálína Gunnlaugsdóttir náði að skora fyrir Keflavík eftir næstum sjö mínútna stigaþurrð gestanna.
Loks þegar Keflvíkingar höfðu náð að skora eftir 16-0 áhlaup KR þá jöfnuðust leikar og liðin fóru að skiptast á forystunni. Bryndís, Pálína og Jackie höfðu sig mest í frammi í liði Keflvíkinga en Melissa og Guðrún Gróa voru að bíta frá sér hér og hvar.
Áður en langt um leið höfðu Keflvíkingar snúið aftur í maður á mann vörn eftir að hafa prófað svæðisvörn um stund og liðin farin að hitna aðeins í sóknarleiknum samanborið við fremur dræman fyrsta leikhluta. Helga Einarsdóttir, miðherji, jafnaði leikinn í 33-33 með þrist fyrir KR en Keflvíkingar leiddu svo í hálfleik 37-38.
Melissa var með 19 stig og 7 fráköst í liði KR í hálfleik og leit ekki út fyrir að vera dagsgömul í íslensku úrvalsdeildinni. Hjá Keflavík voru Pálína, Jackie og Bryndís allar með 10 stig í leikhléi.
KR jafnaði leikinn 42-42 í upphafi síðari hálfleiks og Birna Valgarðsdóttir fékk sína fjórðu villu í liði Keflavíkur og hélt á bekkinn. Nokkur harka færðist í leikinn en Keflvíkingar voru sjónarmun á undan lengstum en KR beit frá sér á lokaspretti leikhlutans og leiddu 52-51 fyrir fjórða leikhluta þar sem Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir átti fínar rispur í liði KR.
Helga Einarsdóttir hafði Jacquline Adamshick í gjörgæslu allan síðari hálfleikinn en þessi magnaði leikmaður gerði aðeins tvö stig í hálfleiknum og lauk leik með 12 stig í kvöld. Með Adamshick að glíma við smávægileg meiðsli og Helgu að taka ,,overcoat“ á hana var mikill broddur farinn úr sókn Keflvíkinga sem KR nýtti sér vel. Ingibjörg Jakobsdóttir minnkaði muninn í 59-56 fyrir Keflavík og voru það aðeins fimmtu stig Keflavíkur á jafn mörgum mínútum í fjórða leikhluta.
Varnarleikur KR reyndist Keflavík loks um megn og KR skreið því fram úr og höfðu að lokum 75-64 sigur í leiknum og litu fjarri því út fyrir að vera lið sem var að fá inn nýjan leikmann og með lykilleikmann í banni.
Birna Valgarðsdóttir er að glíma við meiðsli en var í villuvandræðum í Keflavíkurliðinu í kvöld og náði ekki að skora þrátt fyrir að spila tæpar 20 mínútur í leiknum. Bryndís Guðmundsdóttir fór fyrir Keflavík í kvöld með 21 stig en eins og áður segir átti Melissa frammistöðu kvöldsins í liði KR með 25 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar.
Heildarskor:
KR: Melissa Ann Jeltema 25/12 fráköst/6 stoðsendingar, Hildur Sigurðardóttir 12/5 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 11/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 10, Signý Hermannsdóttir 8/8 fráköst, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 5, Hafrún Hálfdánardóttir 4/4 fráköst, Svandís Anna Sigurðardóttir 0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0, Kristbjörg Pálsdóttir 0, Sigríður Elísa Eiríksdóttir 0, Aðalheiður Ragna Óladóttir 0.
Keflavík: Bryndís Guðmundsdóttir 21/5 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 16/7 fráköst, Jacquline Adamshick 12/12 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Marina Caran 7, Hrönn Þorgrímsdóttir 0, Marín Rós Karlsdóttir 0, Hrund Jóhannsdóttir 0, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 0, Árný Sif Kristínardóttir 0, Eva Rós Guðmundsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson , Eggert Þór Aðalsteinsson
Byrjunarlið:
KR: Hildur Sigurðardóttir, Melissa Jeltema, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Hafrún Hálfdánardóttir og Helga Einarsdóttir.
Keflavík: Ingibjörg Jakobsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Jacquline Adamshick.
Þriðji leikur liðanna fer fram í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ föstudaginn 25. mars kl. 19:15.
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski – [email protected]
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson – [email protected]





