HomeFréttirValur spilar í Iceland Express deildinni að ári: Sýndu enga miskunn

Valur spilar í Iceland Express deildinni að ári: Sýndu enga miskunn

 
Valur sýnda enga miskunn þegar þær gjörsigruðu Stjörnuna í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda í kvöld. Sigurinn var aldrei í hættu og fór munurinn minnst niður í 20 stig eftir fyrsta leikhluta. Stjarnan skoraði aðeins 4 stig í fjórða leikhluta gegn Valsliðinu sem byrjaði ekki að fagna fyrr en um það bil half mínúta var eftir af leiknum þó úrslitin væru löngu ráðin. Krystal Ellis var lang atkvæðamest í liði Vals með 38 stig, 16 fráköst og 7 stoðsendingar. Næstar voru þær María Björnsdóttir með 17 stig og 6 fráköst og Berglind Karen Ingvarsdóttir með 14 stig.
Hjá Stjörnunni var Bára Fanney Hálfdánardóttir stigahæst með 14 stig og 17 fráköst en næstar voru Lára Flosadóttir með 11 stig og 10 fráköst og Heiðrún Ösp Hauksdóttir með 8 stig.
 
Valsstúlkur sýndu það strax á upphafsmínútunum að þær ætluðu ekki að gefa eftir frá því í seinasta leik því þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður höfðu þær náð 15 stiga forskoti, 17-2, og skilaboðin því skýr. Stjörnunni tókst aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn og Valsstúlkur juku forskotið smám saman. Þegar fyrsta leikhluta var lokið höfðu þær náð 20 stiga forskoti, 32-12.

 
Sagan var sú sama fyrri hluta annars leikhluta þegar Valsvörnin lokaði á alla sóknartilburði gestana nema skotin fyrir utan sem voru ekki að nýtast Stjörnunni. Þegar annar leikhluti var hálfnaður var forskot gestana 27 stig, 45-18. Þá tóku gestirnir hins vegar við sér og tókst að minnka muninn á næstu mínútum. Barry Timmermans, þjálfari Stjörnunnar tók svo leiklé þegar um það bil ein mínúta var eftir en þá var munurinn kominn niður 22 stig, 52-30. Valur hleypti þeim ekki nær en það í fyrri hálfleik og þegar flautað var til hálfleiks höfðu þær yfir 56-32.
 
Stigahæst í liði Vals í hálfleik var Krystal Ellis með 17 stig en næstar voru Berglind Karen Ingvarsdóttir með 12 stig og María Björnsdóttir með 11 stig Hjá Stjörnunni var Bára Fanney Hálfdánardóttir með 10 stig en næstar voru Lára Flosadóttir með 9 stig og Dagmar Traustadóttir með 6 stig.
 
Valur náði forskotinu upp í 30 stig snemma í þriðja leikhluta og héldu því forskoti lengi. Stjarnan hélt þó í hefðina og kom til baka í seinni hluta leikhlutans. Í þetta skiptið var það alvöru endurkoma því á þriggja mínútna kafla skoruðu þær 11 stig gegn engu stigi Vals og breyttu stöðunni úr 70-40 í 70-51. Varnarleikur Stjörnunnar kom þá sterkur inn og skilaði því þessum árangri. Valsstúlkur skoruðu svo seinustu körfu leikhlutans þegar 8 sekúndur voru eftir og voru því 21 stigi yfir þegar einn leikhluti var eftir, 72-51.
 
Það gékk illa hjá báðum liðum að koma boltanum ofaní í upphafi fjórða leikhluta en Valsstúlkur voru duglegar að sækja sér sóknarfráköstin og uppskáru eftir því. Barry Timmermans tók leikhlé þegar þrjár og half mínúta var liðin af leikhlutanum en þá hafði Stjörnunni ekki tekist að skora stig í leikhlutanum gegn 4 stigum Vals, 76-51. Þegar leið á leikhlutann fór að verða ljóst að gestirnir höfðu ekki trú á verkefninu því Valsstúlkur stálu boltanum trekk í trekk og fengu jafnvel tvær tilraunir í sniðskotið áður en Stjarnan var mætt í vörn. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum tók því Barry Timmermans leikhlé fyrir Stjörnuna en þá hafði Valur náð forskotinu aftur upp í 35 stig, 88-53. Valur hafði því skorað 18 stig gegn 2 stigum Stjörnunnar. Valur var gat því farið að fagna sæti í Iceland Express deildinni og úrslitin orðin ljós. Þegar flautað var til leiksloka var munurinn á liðunum 42 stig, 97-55. Valur hafði því betur í þessari rimmu með samanlögðum 68 stigum.

Myndasafn frá leiknum eftir Torfa Magnússon

 
Ljósmyndir með frétt/ Tomasz Kolodziejski[email protected]  
 
Umfjöllun: Gísli Ólafsson

Fréttir
- Auglýsing -