HomeFréttirÞríframlengt í Staples Center og 276 stig skoruð

Þríframlengt í Staples Center og 276 stig skoruð

 
LA Lakers og Phoenix Suns buðu upp á þríframlengda skemmtun í Staples Center í nótt þar sem heimamenn í Lakers höfðu að lokum sigur, 139-137. Kobe Bryant vantaði aðeins eina stoðsendingu upp á þrennuna en hann gerði 42 stig, tók 12 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.
Staðan var 112-112 að loknum venjulegum leiktíma þar sem Kobe fékk tækifæri til að skora sigurkörfu fyrir Lakers og Vince Carter fékk einnig sama tækifæri en báðir klikkuðu þeir og því varð að framlengja. Þegar 1,1 sekúnda var eftir af fyrstu framlengingu braut Lamar Odom á Channing Frye í þriggja stiga skoti og Frye setti niður öll þrjú vítin og jafnaði metin 121-121 og framlengja varð öðru sinni.
 
Í lok annarar framlengingar var það Pau Gasol sem jafnaði metin fyrir Lakers á vítalínunni, 130-130 og því var splæst í þriðju framlengingu. Á lokaspretti þriðju framlengingar gerði Kobe Bryant út um leikinn þegar hann kom Lakers í 139-135 þegar 14 sekúndur voru eftir. Suns gerðu tvö stig til viðbótar og lokatölur leiksins 139-137 og í fyrsta sinn síðan árið 1969 sem Lakers fara í þríframlengdan leik á heimavelli. Hjá Suns var Channing Frye stigahæstur með 32 stig og 14 fráköst.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Portland 111-76 Washington
Atlanta 81-114 Chicago
 
Mynd/ Bryant var illviðráðanlegur í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -