Stjörnumenn hafa kallað saman langferðabíla til þess að ferja sína stuðningsmenn til Grindavíkur í kvöld þar sem eigast við Grindavík og Stjarnan í oddaleik um laust sæti í undanúrslitum Iceland Express deildar karla.
Rúturnar fara frá Ásgarði í Garðabæ kl. 18:10 og er verð kr. 500 á mann en frítt fyrir iðkendur körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.
Þá verða ÍR-ingar einnig með sætaferðir frá Seljaskóla og suður til Keflavíkur kl. 18:00. Rútan verður fyrir stuðningsmenn ÍR og þeim að kostnaðarlausu á meðan pláss leyfir.





