Norðurlandamót unglinga í körfuknattleik er hafið í Svíþjóð en venju samkvæmt fer mótið fram í Solna, heimavelli Solna Vikings. Íslenska U18 ára landslið Íslands í kvennaflokki er nú við það að hefja leik gegn Finnum.
Aðeins tveir leikir eru á dagskránni í dag og kl. 21 að staðartíma eða kl. 19 að íslenskum tíma mætast U18 ára karlalandslið Íslands og Danmerkur.
Karfan.is er vitaskuld í blússandi gír í Solnahallen og mun greina ítarlega frá mótinu.
Mynd/ Starfsmenn KKÍ, þeir Stefán Þór Borgþórsson og Kristinn Geir Pálsson, sleiktu sólina í Svíþjóð áður en þeir skelltu sér inn í Solnahallen.




