HomeFréttirÞrír leikir í sænsku í kvöld

Þrír leikir í sænsku í kvöld

Okkar menn verða á ferð og flugi í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jamtland Basket taka á móti Norrköping Dolphins.
 
Jakob og Pavel fara á útivöll þegar meistarar Sundsvall Dragons mæta ecoÖrebro, Hlynur Bæringsson varð eftir heima sökum bakmeiðslanna sem hann glímir við. Helgi Magnússon verður í eldlínunni með 08 Stockholm HR á útivelli gegn LF Basket sem tók Sundsvall í karphúsið í síðustu umferð.
 
Fréttir
- Auglýsing -