HomeFréttirÚrslit: Baker-Brice hetja Njarðvíkinga – söguleg stund hjá grænum

Úrslit: Baker-Brice hetja Njarðvíkinga – söguleg stund hjá grænum

Njarðvíkingar náðu sögulegum áfanga í kvöld þegar liðið komst á toppinn í Iceland Express deild kvenna með 69-72 sigri á Snæfell í spennuslag í Stykkishólmi. Njarðvíkingar hafa aldrei áður verið á toppi deildarinnar þegar svo langt er liðið á Íslandsmótið og því nýr kafli skrifaður í kvöld í 60 ára sögu körfuknattleiks í Njarðvík.
 
Það var Shanae Baker-Brice sem gerði út um leikinn með þriggja stiga skoti þegar 4 sekúndur voru til leiksloka. Hólmarar fengu tækifæri til að koma leiknum í framlengingu en það hafðist ekki og Njarðvíkingar fögnuðu sigri og um leið toppsætinu þó Keflavík eigi nú leik til góða á grænar.
 
Baker-Brice fer mikinn þessi dægrin í liði Njarðvíkinga en hún setti 39 stig og tók 7 fráköst hjá Njarðvík og Lele Hardy bætti við 14 stigum og 18 fráköstum. Þá var Petrúnella Skúladóttir með 13 stig og 6 fráköst. Hjá Snæfell var Kieraah Marlow með 21 stig og Hildur Sigurðardóttir bætti við 15 stigum.
 
Nánar síðar…
 
Fréttir
- Auglýsing -