Snæfell gerði góða ferð í Grafarvoginn í gærkvöldi og lagði Fjölni í Iceland Express deild kvenna. Hildur Sigurðardóttir setti niður stóru þristana fyrir Snæfell og þeir gerðu svo sannarlega gæfumuninn enda fóru Hólmarar heim með tvö stig eftir 85-94 sigur á Grafarvogskonum.
Leikurinn í gærkvöld var jafn og spennandi allan tímann, rétt á fyrstu mínútum leiksins virðist Alda Leif fá tak í löppina og hlúð var að henni en hún fór útaf eftir 5min leik og kom ekki meira við sögu. Rétt fyrir hálfleik komst Snæfell yfir með þremur stigum, en Fjölnisstúlkur komu grimmar til baka í þriðjaleikhluta og náðu fínum kafla 9-0 , hægt og rólega var jafnt aftur í leiknum og þegar 3 min eru eftir missir Snæfell Kieraah Marlow útaf með 5 villur en hún var búin að láta taka vel til sín í seinni hálfleiknum. Eftir það klikkar vörnin hjá Fjölni og þær fá á sig 8 stig á innan við einni mínútú, 2 þrista í röð og auðvelt sniðskot þegar Hildur keyrði í gegnum teginn og skoraði. Eftir það var erfitt fyrir Fjölni þar sem 1min og 30 sek eru eftir og 10 stiga munur, restin af leiknum kláraðist á vítalínunni og endaði með sigri Snæfells.
Punktar um leikinn:
* Hildur Sigurðardóttir var besti maður leiksins með þessum risa þristum sem dugðu til sigurs
* Erlendir leikmenn beggja liða fengu 5 villur
* Mikið var um persónulegar árásir á leikmenn frá áhorfendum! Leiðinleg skot og óþarfa dónaskapur frá fullorðnu fólki
* Fjölnir var yfir með 2 fráköstum í hálfleik en tapa svo seinni með 12 fráköstum
Umfjöllun/ Karl West




