HomeFréttirHardy: Býr mikið í þessu unga Njarðvíkurliði

Hardy: Býr mikið í þessu unga Njarðvíkurliði

Lele Hardy átti risavaxinn leik í Njarðvíkurliðinu í dag þegar grænklæddar lögðu Valskonur 83-85 í Iceland Express deild kvenna. Hardy gerði 30 stig í leiknum, tók 20 fráköst og stal 6 boltum ásamt því að gefa 3 stoðsendingar. Hardy sagði í samtali við Karfan.is að Njarðvíkurliðið væri ungt en hæfileikaríkt.
 
,,Einu af okkar markmiðum er náð,“ sagði Hardy strax eftir leik og átti þá við að Njarðvíkingar ætluðu sér að vera við toppinn um jólin. Hún kvaðst ekki þotuþreytt eftir flug til og frá Bandaríkjunum síðustu daga en þangað þurfti hún að fara ásamt Shanae Baker-Brice sökum vandamála tengdum veru þeirra á landinu en þau mál ku vera úr sögunni.
 
,,Það býr mikið í þessu unga Njarðvíkurliði og ef við höldum okkur á réttri braut geta hlutirnir smollið enn betur saman hjá okkur. Við Shanae Baker-Brice erum fengnar í hópinn sem atvinnumenn og öxlum því mikla ábyrgð en það er virkilega gott þegar aðrir leikmenn stíga upp,“ sagði Hardy en hver eru hennar persónulegu markmið þessa leiktíðina?
 
,,Að vera með Njarðvíkurliðið á meðal efstu liða og taka þá titla sem í boði eru.“ Klippt og skorið, enginn feluleikur, Njarðvíkingar ætla sér ekkert að gefa eftir í titlabaráttunni.
 
Fréttir
- Auglýsing -