HomeFréttirÖruggt hjá Njarðvík

Öruggt hjá Njarðvík

Það var nokkuð öruggur sigurinn hjá Njarðvík í kvöld þegar þær tóku á móti Haukum í Iceland Express deild kvenna. Liðin fyrir leik í 2. og 3. sæti og fyrirfram því búist við hörku viðureign.  En það voru Njarðvíkurstúlkur sem voru töluvert grimmari og mættu tilbúnari til leiks þetta skiptið og náðu forystu sem þær létu aldrei af hendi frá fyrstu mínútu. 87:70 lokastaða leiksins eftir að staðan í hálfleik hafði verið 48:25
Njarðvík skoraði fyrstu stig leiksins og fljótlega eða eftir fimm mínútna leik var staðan orðin 16:7 heimastúlkum í vil. Hope Elam virtist vera ein með meðvitund sóknarlega hjá Haukum og hafði skorað 5 af þessum 7 stigum. En það var víst það eina sem hún sýndi þetta kvöldið þar sem hún átti arfa slakan leik það sem af lifði og fékk hún að launum að dúsa á bekknum hjá Bjarna Magnússyni þjálfara þeirra. Njarðvík spilaði þrusugóða vörn og gerðu Haukum hvað eftir annað mjög erfitt fyrir. Drifnar áfram af Sverri Sverrissyni þjálfara sem er virkur á hliðarlínunni að öskra í þær baráttuna. Þetta virðist virka hjá þeim því kappið sem hleypur í stúlkur hans er mikið og börðust þær fyrir öllum boltum. 
 
Þessi barátta skilaði þeim 48:25 forystu í leikhléi. Haukaliðið mætti til seinni hálfleiks nánast á sama leikhraða og í þeim fyrri. Örlítill neisti hafði þó kviknað hjá Jence Rhoads sem á tíma bar sóknarleik þeirra rauðu algerlega á herðum sér. Stúlkan endaði í sérflokki þetta kvöldið hjá Haukum og skilaði í hús 27 stigum. En sem fyrr segir munaði mikið um Elam Hope sem náði sér aldrei á strik í þessum leik. 
 
Hjá Njarðvík voru þær Shanea og Lele sterkar að vanda. Petrúnella hafði hægt um sig framan af en sallaði svo niður stigunum og þar af  nokkrar langdrægar körfur eins og henni er lagið. Erna Hákonardóttir kom svo inn af bekknum og smellti niður þremur þristum á stuttum tíma og endaði hún í 12 stigum eftir að hafa sett svo einn þrist í seinni hálfleik.
 
Njarðvík heldur því öðru sætinu en með ósigri duttu Haukar niður fyrir KR sem sigruðu Hamar og skelltu sér í þriðja sætið. 
 
Fréttir
- Auglýsing -