HomeFréttirBosh með 33 stig í fjarveru Wade og James

Bosh með 33 stig í fjarveru Wade og James

Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Chris Bosh fór mikinn í útisigri Miami Heat og Portland tóku á móti grönnum sínum í LA Lakers og höfðu betur.
 
 
Atlanta 109-116 Miami
Chris Bosh fór á kostum hjá Heat með 33 stig, 14 fráköst og 5 stoðsendingar í fjarveru þeirra Dwyane Wade og LeBron James sem eru að glíma við smávægileg meiðsli. Hjá Atlanta var Joe Johnson svo atkvæðamestur með 20 stig.
 
Portland 107-96 LA Lakers
Gerald Wallace gerði 31 stig fyrir Portland og tók 5 fráköst en Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 30 stig og 8 fráköst.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
San Antonio 93-71 Dallas
Sacramento 103-100 Milwaukee
 
Mynd/ Bosh lék sinn besta leik á tímabilinu í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -