Lára Flosadóttir er fyrirliði fyrstudeildarliðs Stjörnunnar sem í dag dróst á móti Snæfell í undanúrslitum Poweradebikarkeppninnar í kvennaflokki. Stjarnan fer á útivöll og mætir Hólmurum sem hafa ekki gefið mörg færi á sér á heimavelli.
,,Þetta verður bara gaman, leikurinn fer í reynslubankann og allir leikmenn liðsins eru spenntir fyrir þessu. Við erum ekki með neinn atvinnumann enda í 1. deild en þetta er góð reynsla fyrir næsta vetur enda stefnum við að því að fara upp í úrvalsdeild og vonandi tekst okkur að stríða Snæfell, halda í við þær og gefið þeim góðan leik, það er a.m.k. markmiðið,“ sagði Lára en er markmiðið ekki að komast í Laugardalshöll?
,,Auðvitað væri það frábært, það væri bara snilld en maður þarf líka að vera raunsær en við ætlum að berjast alla leið, það er bara þannig,“ sagði Lára sem gerir sér vel grein fyrir því að töluverður munur sé á 1. deild og úrvalsdeild.
,,Það er gaman að fá góðan mótherja því í 1. deild er oftar en ekki að finna blöndur úr stúlknaflokki og eldri leikmönnum og svona allskonar. Deildin er ekki mjög sterk í vetur að mínu mati og við höfum unnið alla okkar leiki nema einn svo þetta er mjög gott að fá þessa leiki í bikarnum,“ sagði Lára en við slepptum henni ekki án þess að rýna í hinn undanúrslitaleikinn, viðureign Njarðvíkur og Haukar.
,,Ég hugsa að Njarðvík fari í Höllina, mér finnst þær sterkar núna.“
Mynd/ [email protected] – Lára og Bryndís Hanna Hreinsdóttir leikmenn Stjörnunnar létu sig ekki vanta á bikardráttinn í dag.



