"Menn mættu bara tilbúnir, það sem við vorum búnir að tala um. Við erum búnir að vera að tapa leikjum. Þetta var kannski smá skref hjá okkur í dag. Við mættum til leiks með hópinn allan, eins og hann endar þetta, í fyrsta skiptið í vetur. Það var náttúrulega gleðilegt. Það stendur uppúr að Jovan var að spila og hittir þarna strax úr einhverjum þristum eftir að hafa ekki æft með okkur í þrjá mánuði. Það er náttúrulega bara gleðilegt. Svo missum við aðeins einbeitinguna og þeir minnka þetta niður í einhver 15-16 stig".
Það hefur þá hjálpað til að mótivera menn að vera loksins kominn með fullmótaðan hóp?
"Mikið af körfunum hjá okkur var extra sendingin og menn voru að spila og gera eitthvað saman. Það er náttúrulega lang skemmtilegast og þá dreifist skorið. Og svo eins og þú segir að fá Jovan inn aftur, þá var þetta svona smá veisla hjá okkur. Mikil gleði eins og þú sást þegar hann hitti úr fyrsta skotinu. Við erum ekki búin að sjá þetta í þrjá mánuði".
Við getum þá búist við því að sjá Jovan á fullu skriði í næstu leikjum?
"Núna kemur hann inní þetta hægt og rólega og Núna getum við farið að spila á fleiri mönnum. Við erum nýbúin að fá Renato og Jovan aftur og þá er komin þessi eðlilega breidd sem menn verða að hafa ef þeir ætla að gera eitthvað í deildinni".
Ragnar Gylfason var stigahæstur í liði Valsmanna í kvöld með 14 stig en hann hefur verið með stigahæstu mönnum liðsins í undanförnum leikjum. Valsmenn misstu Garrison Johnson fyrir leikinn og því þurftu menn að stíga upp og fylla það skarð sem hann skilur eftir sig.
"Þeir voru bara miklu betra lið í dag og spila bara miklu betur. Við erum ekki búnir að spila vel og við þéttum okkur saman þegar við eigum möguleika á sigri. Við erum með þunnan mannskap og unga stráka. Við vorum að missa Garrison fyrir þennan leik. Ég veit ekki hvað maður getur sagt. Maður ber ekkert virðingu fyrir þeim þannig séð. Maður kemur inní hvern leik til að vinna og gera sitt besta. Berjast fyrir fyrsta sigrinum. Vonum bara að hann komi í vetur".
Myndasafn eftir Tomasz Kolodziejski má finna hér
Mynd: [email protected]



