HomeFréttirHamar hafði sætaskipti við Breiðablik (umfjöllun)

Hamar hafði sætaskipti við Breiðablik (umfjöllun)

  Föstudagskvöld og Breiðablik í heimsókn í Hveragerði þar sem mátti búast við hörku leik! Hamar var með 12 stig í 4. sæti og Blikarnir gátu styrkt stöðu sína í 3.sætinu, með 14 stig fyrir leikinn. Önnur varð þó raunin og Hamar vann frekar átakalítinn sigur 77-57.
 

Kannski sat ferðin um Þrengslin í þeim grænklæddu í byrjun leiks því Hamar komust fljótlega í 12-2 og 18-12 eftir fyrsta leikhluta. Hittnin varð betri í 2. leikhluta hjá báðum liðum og leikurinn meira fljótandi. Breiðablik saxaði þá jafnt og þétt á forustu heimamanna sem voru að spila á stundum einhæft inn á Ragnar inn í teig og hjá honum gékk ekkert í leikhlutanum. Þegar rúmar 2 mínútur voru til leiksloka setti Arnar Pétursson 3ja stiga körfu og minkaði muninn í 32-29 og allt galopið. Hamar lokaði svo leikhlutanum með 10-0 áhlaupi og fór inn í leikhlé með 13 stiga forustu þar sem Lalli Jóns setti tvo 3ja stiga en milli þess setti Ragnar 4 stig á síðustu mínútunum.

 

3. leikhluta gerðu heimamenn svo út um leikinn þar sem þeir unnu leikhlutann 24-10 og fátt um stórtilþrif hjá gestunum. Meiri breidd var hjá Hamri og miklu munaði um að Þorsteinn Gunnarsson, hjá Blikum, var ekki svipur hjá sjón miðað við fyrr leik þessara liða. Eins vóg reynsla Svavars og Lárusar þungt og það kannski helsti munurinn á þessum liðum sem eru skipuð mörgum ungum framtíðarleikmönnum. 

 

4. leikhluta tekur varla að fjalla um þar sem mest bar á dómurum kvöldsins og þeir voru ekki með sinn besta leik frekar en margur leikmaðurinn á vellinum í þessum leikhluta.

 

Lárus Jónsson var stigahæstur heimamanna með 17 stig en Svavar Páll var maður kvöldsins með 14 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar (29 í framlag). Halldór var með 13 stig, Louie 9 stig/6 fráköst, Ragnar 9 stig/8 fráköst, Bjartmar 6 stig, Bjarni Rúnar 5 og Michael 4.

 

Hjá gestunum var Arnar með 12 stig, Hraunar Karl 9, Atli 8, Rúnar 7, Snorri 5, Ágúst og Hákon 4, Hjalti Már og Þorsteinn 3 og Ægir með 2 stig.  Frákasta hæstur Breiðabliks var Þorsteinn með 4 fráköst!

 

Nokkrir punktar eftir kvöldið. 

  • Blikar tóku aðeins 18 fráköst allan leikinn, þar af 1 sóknarfrákast.
  • Hamar var með 44 fráköst, þar af Ragnar og Svavar Páll með samtals 21 frákast.
  • Þorsteinn „Bliki“ Ragnarsson skoraði 35 stig og tók 24 fráköst í fyrri leik liðanna en 3 stig og 4 fráköst í kvöld .. munar um minna!
  • Liðin höfðu sætaskipti eftir leikinn þar sem bæði hafa 14 stig en Hamar með betri stöðu í innbirgðis viðureignum.

 

 

Umfjöllun: Anton Tómasson

Fréttir
- Auglýsing -