Fyrsti leikhlutinn var sá mest spennandi þar sem Grindvíkingar skoruðu 29 stig en Fjölnismenn 25. Í öðrum leikhluta voru liðin bæði að hitta körfuna illa og var mikið um mistök á báða bóga. Í hálfleik var staðan 50 – 41 fyrir heimamönnum. Í seinni hálfleik mætti segja að aðeins eitt lið væri á vellinum þar sem Grindvíkingar völtuðu yfir Fjölnismenn, og ef ekki hefði verið fyrir stórleik hjá hinum 17 ára, Björgvini Hafþóri Ríkharðssyni má segja að leikurinn hefði endað enn verr fyrir Grafarvogsbúa. Grindvíkingar skoruðu 57 stig í síðari hálfleik gegn 32 stigum Fjölnismanna.
Tilþrif leiksins áttu Bullock og Watson, en sá síðarnefndi setti boltann í spjaldið og Bullock tróð eins og honum einum er lagið.
Páll Axel Vilbergsson er kominn aftur í búning Grindvíkinga eftir mikil meiðsli og átti hann góðan leik, á 17 mínútum skoraði hann 17 stig og átti 5 fráköst.
Stigahæstur í liði Grindavíkur var J’Nathan Bullock með tröllatvennu, 26 stig og 17 fráköst en næstir voru Páll Axel Vilbergsson 17 stig/5fráköst, Sigurður Þorsteinsson 14 stig, Giordan Watson 11 stig/4stoðsendingar/ 4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10 stig/10 fráköst.
Stigahæstur í liði Fjölnis var Björgvin Hafþór Ríkarðsson með 19 stig, Arnþór Freyr Guðmundsson 16 stig,Nathan Walkup 13 stig/9 fráköst, Calvin O’Neal 13 stig, Jón Sverrisson 10 stig/7 fráköst.
Tölfræði leiksins má finna hér
Umfjöllun: DAF



