Hólmarar féllu út í undanúrslitum úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en liðið hafði þá aldrei áður náð jafn langt í Íslandsmótinu. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfellskvenna sat fyrir svörum þegar við litum inn en komandi tímabil leggst mjög vel í kappann.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Við höfum misst flottar stelpur í bæinn og á flakk en Björg Guðrún Einarsdóttir fór í KR, Sara Mjöll Magnúsdóttir er á ferðalagi um heiminn og Ellen Alfa Högnadóttir er í Kennó. Æfingahópurinn er því fámennari en í fyrra en við erum engu að síður brött með flottar dömur í öllum stöðum.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningurinn hefur verið í fínu lagi, við æfðum vel í sumar og fengum Kieraah til liðs við okkur tveimur dögum áður en við héldum út til Danmerkur þar sem við lékum þrjá leiki. Þeir leikir voru okkur góðir og eigum við eftir að nýta okkur ýmislegt úr þeirri góðu ferð í vetur. Við erum komin í úrslitaleikinn gegn Keflavík í Lengjubikarnum og því má segja að við séum búin að gera meira núna en í fyrra.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Það leggst mjög vel í mig, við erum með leikmenn í öllum stöðum en fjöldinn er ekki að sliga okkur. Í fyrra náðum við í úrslitakeppnina og duttum út fyrir góðu Njarðvíkurliði í skemmtilegri rimmu, stelpurnar eru staðráðnar að standa sig eins vel og möguleiki er á. Það er leikið þétt og mikið af leikjum þannig að það verður bara dúndurstemmning.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Ég tel að Keflavík séu með gott lið í ár, og einnig sé mannskapurinn hjá Val mjög öflugur. KR verða góðar en síðan hef ég ekki séð útlendingana hjá öðrum liðum og því verður snúið að spá um það. Við ætlum okkur að vera með í toppbaráttunni eins og sönnu keppnisfólki ber að koma fram.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Það eru margar ungar dömur í Keflavík sem eiga eftir að stíga upp, einnig munum við sjá fleiri íslenskar stelpur gera hlutina í ár en í fyrra. Ég held að tímabilið eigi eftir að verða þrælskemmtilegt og óska þess að mínar dömur springi út á og njóti þess að leika körfuknattleik fyrir Snæfell.
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
Fyrsta umferð:
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell






