Derrick Rose
Derrick hefur verið þekktur fyrir sprengikraft sinn sem margir óttast að hann nái ekki upp aftur eftir erfið meiðsli. Derrick hefur því oftar en ekki tekið á flug framhjá varnarmanninum og leikið sér að því að troða boltanum. Hérna má sjá 10 af hans allra glæsilegustu troðslum.
9. sæti
Gerald Green
Gerald Green er einn af þeim leikmönnum sem er ekki aðeins skemmtikraftur í troðslukeppninni heldur tekur hann uppá ótrúlegustu troðslum í leik. Hann hefur meðal annars tekið vindmilluna svokölluðu nokkrum sinnum og er ekki vanur að láta sér nokkuð finnast þó einhverjir varnarmenn reyni að stilla sér upp á milli hans og körfunnar. Green vann troðslukeppnina árið 2007.
8. sæti
Amar’e Stoudemire
Amar’e er einn af kraftmeiri framherjum deildarinnar og hefur sex sinnum verið í NBA AllStar liðinu. Það fylgir starfinu sem framherja af hans stærðargráðu og með hans hreyfanleika að troða boltanum við og við. Amar’e hefur svo sannarlega verið duglegur við að troða boltanum og margir muna eftir samvinnu hans og Steve Nash þegar þeir léku báðir með Pheonix Suns.
7. sæti
Nate Robinson
Nate er klárlega minnsti maðurinn á listanum og þó víðar væri leitað. Aðeins 175 cm en hefur aldrei látið það stoppa sig í að stökkva hæð sína í loft og jafnvel meira en það. Nate Robinson er eini leikmaðurinn í sögu NBA deildarinnar sem hefur sigrað troðslukeppnina þrisvar sinnum, 2006, 2009 og 2010. Það elska allir að sjá Nate Robinson troða.
6. sæti
Kobe Bryant
Kobe þekkja flestir og það líklega fyrir hans stórkostlega sóknarleik. Kobe er kominn í fimmta sæti yfir flest stig í deildinni og því nokkuð ljóst að maðurinn hefur troðið boltanum við og við. Kobe tók þátt í troðslukeppninni á sínu öðru ári í deildinni og lét þar við sitja. Hann hefur þó sýnt það í gegnum tíðina að hann hefur ímyndunaraflið og kraftinn til þess að skemmta áhorfendum með glæsilegum troðslum.
framhald af listanum er að vænta á morgun






