,,Þetta er frábær byrjun á tímabilinu og algerlega það sem við ætluðum okkur. Þegar okkur var spáð 10. sæti í deildinni héldum við liðsfund um málið og fórum yfir þetta og við bara fórum yfir hvað menn þyrftu að gera til að fá þetta ,,edge" yfir hin liðin," sagði vígreifur Árni Ragnarsson eftir sigur Fjölnis á KR í Domino´s deild karla í kvöld. Árni fór mikinn í liði Fjölnis og var að öðrum ólöstuðum þeirra besti maður í kvöld með 19 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar.
,,Hjalti hefur gert frábæra frábæra hluti með liðið, við erum að vakna snemma á morgnana og æfa, fara í yoga og hópurinn er samheldinn. Við erum ekki í þessu til að vera með við erum í þessu til að taka Fjölni á næsta ,,level" og þessi sigur er bara einn sigur. Hvort sem það er sigur eða tap þá erum við alltaf að vinna að því að koma mönnum upp á næsta þrep."
Fyrir Fjölni að hafa misst grátlega af úrslitakeppninni síðustu tvö tímabil hlýtur að hafa verið þungt, er það vatn á myllu manna í Dalhúsum þetta tímabilið?
,,Ég held að þetta sitji í hópnum og í fyrra hafði ég trú á því að við gætum unnið hvert einasta lið en við lentum í miklum meiðslum og vorum ekki með það breiðan hóp fyrir. Ég hef rosalega trú á þessum strákum í liðinu, jafn mikla og öllum öðrum leikmönnum í deildinni. Ef við höldum áfram að vinna okkar vinnu þá er það ekki spurning hvort við förum í úrslitakeppnina heldur eitthvað allt annað en það."
Mynd/ Björn Ingvarsson – Árni var varnarmönnum KR erfiður í kvöld.






