HomeFréttirDramatískur Njarðvíkursigur í Þorlákshöfn – Villurnar urðu Þórsurum að falli

Dramatískur Njarðvíkursigur í Þorlákshöfn – Villurnar urðu Þórsurum að falli

Í kvöld mættust Þór og Njarðvík í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn. Áhorfendabekkirnir voru þétt setnir löngu fyrir leik, enda hefur körfubolti verið aðal umræðuefni bæjarbúa í Þorlákshöfn í kjölfar góðs gengis Þórsara á síðasta tímabili.
Skemmst er frá því að segja að Njarðvík fagnaði sigri, 84-82, eftir æsispennandi framlengingu. Þórsarar höfðu leitt leikinn mest allan tímann og komust mest í 19 stiga forystu um miðbik þriðja leikhluta en voru allan tímann í gríðarlegum villuvandræðum sem kostuðu þá alveg heilan helling í kvöld.
 
Robert Diggs, framherji Þórs nældi sér í 5 villur á 11 mínútum og 17 sekúndum í kvöld og dómaratríóið virtist ekki vera hrifið af því hvernig hann varðist Njarðvíkingunum. Reyndar voru fleiri sem voru ekkert sérstaklega hrifnir af því, enda virkaði hann eiginlega bara á hælunum í vörninni gegn Jeron Belin og félögum í Njarðvík sem notfærðu sér það og fiskuðu á hann hverja ódýru villuna á fætur annarri.
 
Grétar Ingi Erlendsson bar því þungann af framherjastöðunni hjá Þórsurum í kvöld og skilaði henni vel, skoraði nokkrar fínar körfur og reif 9 fráköst, en varð þó margoft að sætta sig við þá staðreynd að Marcus Van, framherji Njarðvíkinga, er með hrikalega langar hendur og hoppar ansi hátt. Van tók 15 fráköst í kvöld og var sterkur í vörninni, en virðist hinsvegar ekki alveg jafn seigur í sóknarleiknum þar sem hann tapaði boltanum nokkrum sinnum og nýtti skotin sín illa.
 
Þórsarar voru eins og áður segir búnir að sigla töluvert fram úr Njarðvíkingum og höfðu þægilega 19 stiga forystu um miðbik þriðja leikhluta en þá hrukku Njarðvíkingar í gang með tveimur þriggja stiga körfum frá hinum unga Elvari Friðrikssyni og Hirti Einarssyni.
 
Njarðvíkingar gengu á lagið eftir það og hjá þeim vaknaði von á meðan að Þórsarar virtust vera orðnir þreyttir og þar að auki með nokkra sterka menn á fjórum eða fimm villum sem tók broddinn úr varnarleik þeirra. Sóknarleikur Þórsara varð erfiðari og menn voru að reyna of mikið sjálfir á meðan að Njarðvíkingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið með tiltölulega einföldum körfum.
 
 
Á lokamínútum fjórða leikhluta voru Njarðvíkingar farnir að nálgast Þórsara og þá skoraði Jeron Belin 8 stig á einni mínútu og kom þeim yfir í fyrsta sinn síðan í stöðunni 31-32. Þórsarar svöruðu þá með tveimur körfum frá Benjamin Curtis Smith og voru yfir, 76-74 þegar 9 sekúndur voru á klukkunni. Þórsarar gleymdu sér svo algjörlega í vörninni og allt í einu var Marcus Van aleinn undir körfunni – hann þakkaði pent fyrir sig og tróð með látum rétt áður en að klukkan gall og tryggði Njarðvíkingum framlengingu, Benedikt Guðmundssyni til lítillar gleði.
 
Í framlengingunni hélt svo spennan áfram og töluvert var um mistök á báða bóga. Njarðvíkingar höfðu þó yfirhöndina, en þegar að hálf mínúta var eftir var staðan 82-82 og Benjamin Curtis Smith stal boltanum af Njarðvíkingum, geystist fram og sendi hann á Emil Karel Einarsson sem átti nokkuð einfalt lay-up eftir en það vildi ekki í hjá stráknum.
 
Njarðvíkingar fengu því síðustu sókn leiksins og þá var komið Jeron Belin sem ákvað að klára þetta bara sjálfur. Hann lét klukkuna telja niður í fimm sekúndur, tók svo á rás inn í vítateig Þórsara, stökk hrikalega hátt og setti boltann í körfuna.
 
Fögnuður Njarðvíkinga var gríðarlegur og svekkelsi heimamanna í Þór á sama tíma mikið, enda voru þeir með leikinn í höndum sér en náðu bara ekki að sigla alveg nógu langt fram úr Njarðvíkingum, sem gáfust aldrei upp og uppskáru eftir því.
 
Stigaskor Þórs: Benjamin Curtis Smith 28/5 stoðs./6 stolnir, Grétar Ingi Erlendsson 14/9 fráköst, Darrell Flake 13, Darri Hilmarsson 11, Robert Diggs 6, Baldur Þór Ragnarsson 5/8 stoðs., Guðmundur Jónsson 5.
 
Stigaskor Njarðvíkur: Jeron Belin 27/14 fráköst, Elvar Már Friðriksson 14/6 stoðs., Maciej Stanislav Biginski 11, Hjörtur Hrafn Einarsson 11/4 stoðs., Marcus Van 11/15 fráköst, Ágúst Orrason 7, Ólafur Helgi Jónsson 4.
 
Myndir/ Davíð Þór
 
Umfjöllun/ Arnar Þór Ingólfsson
Fréttir
- Auglýsing -