Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher töpuðu í gærkvöldi fyrir Bayern Munchen 71-73 í þýsku úrvalsdeildinni. Hörður Axel var með átta stig en hann setti mikilvægar körfur þegar Mitteldeutscher keyrði upp muninn í seinni hálfleik.
Heimamenn í Mitteldeutscher náðu mest 10 stiga forystu í fjórða leikhluta en Bayern náði að jafna leikinn rétt fyrir leikslok. Að lokum hafði Bayern sigur 71-73 en lokaskotið var heimamanna en skot þeirra um leið og flautan gall vildi ekki ofaní.
Hörður Axel var með átta stig, tvo stolna og eina stoðsendingu á þeim 14 mínútum sem hann lék. Hann nýtti aðeins tvö af átta skotum sínum en fyrstu fimm skotin hans rötuðu ekki ofaní. Hann setti tvo þrista á þeim kafla er Mitteldeutscher náði 10 stiga forystu.
Hægt er að sjá myndskeið af leiknum en þar sést m.a. þar sem Hörður keyrir inn miðjuna og gefur á liðsfélaga sinn, og fyrrverandi leikmann Stjörnunnar, Djordje Pantelic sem setur tvö stig.
Eftir tapið eru nýliðar MItteldeutscher með einn sigur og þrjá tapleiki í fyrstu fjórum leikjunum.
Næsti leikur Mitteldeutscher er gegn þýskalandsmeisturum síðustu þriggja ára Brose Baskets frá Bamberg. Leikurinn verður næsta sunnudag á heimavelli Mitteldeutscher.
Mynd: Hörður var með átta stig í gærkvöldi/Matthias Kuch




