HomeFréttirBárður Eyþórs: Þessi spilamennska á að færa okkur 2 stig

Bárður Eyþórs: Þessi spilamennska á að færa okkur 2 stig

Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, var að vonum virkilega svekktur eftir sárt tap gegn Fjölni í Dalhúsum í kvöld.  Tindastóll barðist vel og hefði vel getað klárað leikinn í kvöld.  Það gekk þó ekki eftir og gestirnir horfðu uppá Tómas taka titilinn hetja kvöldins.  
 

Hversu sárt var það að sjá þennan bolta syngja í netinu?
“Mér fannst bara mjög sárt að leikurinn hafi þurft að fara í þennan farveg, að við höfum þurft að verja það að komast í framlengingu.  Mér fannst við sterkari aðilinn lengst af í leiknum þó það vanti töluvert uppá okkar leik ennþá.  Ég lít á þetta þannig að við höfum verið að henda frá okkur frkear en að þeir hafi að vinna þennan leik”.  

Tindastóll hafði sýnt þolinmæði og reynslu sína í leiknum þar sem þeir leituðu að besta skotinu og létu ekki góðan varnarleik heimamanna slá sig útaf laginu.  Það kom þess vegna mörgum á óvart þegar Tindastóll ákvað að nýta sér innkast þegar 17 sekúndur voru eftir af leiknum til þess að reyna alley oop troðslu sem klikkaði með stæl.  

“Nei, það er voðalega erfitt að segja hvað gerist þarna í lokin eða hvað menn eru að hugsa.  Þarna í innkastinu í lokin voru 3 sekúndur eftir þannig að menn þurftu að vera svolítið fljótir að hugsa en því miður fór bara sem fór.  Mér fannst við bara gera alveg nóg til þess að vinna leikinn.  þegar nokkrar mínútur eru eftir af leiknum erum við 8 stigum yfir og þar erum við bara að henda þessu frá okkur, bara ekki nógu skipulagðir.  Mér fannst við spila mjög vel í leiknum, vorum að gera nákvæmlega það sem höfum verið að reyna að gera í hinum leikjunum.  Það tókst mjög vel í kvöld.  Þetta er eitthvað sem við viljum byggja á.  Þó við höfum tapað þessum leik þá viljum við líta á jákvæðu hlutina í þessum leik”.  

Á þessi spilamennska að geta fært ykkur 2 stig á öðru kvöldi?
“Þessi spilamennska á að færa okkur tvö stig, einhverra hluta vegna náum við ekki að klára leikina.  Mér finnst varnarleikurinn það sem af er móti yfir höfuð hafa verið ágætur, við höfum verið að klúðra svolítið sóknarlega séð, verið að fá á okkur auðveld stig úr hraðaupphlaupum.  En við erum að ná að loka því.  Okkur vantar aðeins í liðið en við erum bara að vinna í því”.   

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -