HomeFréttirÖruggur sigur hjá KR

Öruggur sigur hjá KR

Haukar voru ekki mikil fyrirstaða fyrir KR þegar þær heimsóttu Schenkerhöllina í kvöld í sjöttu umferð Dominosdeildar kvenna. Öruggur 75-50 sigur hjá KR og þær komnar á fínt skrið með 3 sigurleiki í röð þar sem að meðaltals stigaskorið þeirra er einmitt 75 stig.
 
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Dagbjört Samúelsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Siarre Evans
 
Byrjunarlið KR: Helga Einarsdóttir, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Björg Guðrún Einarsdóttir, Patechia Hartman, Sigrún Sjöfn Ámundardóttir.
 
Haukar komust í 4-0 en þá hófu KRingar leikinn og Haukastúlkur sáu ekki til sólar eftir það. KR spilaði stífa pressuvörn sem varð síðan að öflugri svæðisvörn og hleyptu Haukum ekkert inn í teig. Vörnin hjá Haukum var mjög gloppótt og sluppu KR oft í opið sniðskot.
KR stjórnaði því leiknum algjörlega, Haukar tóku öll skotin sem KR vildi að þær tækju og svo gat KR nánast gert það sem þeim sýndist í sókninni og voru með góða 38-25 forustu í hálfleik.
 
Seinni hálfleikurinn byrjaði með flugeldasýningu hjá KR þar sem Björg Guðrún og Sigrún settu þrjá þrista saman og var Björg sjóðandi í leiknum með fjögur af fimm þriggjastigaskotum sínum niður. Á sama tíma gekk ekkert upp hjá Haukum. Ef þeim tókst að stoppa sókn KRinga og jafnvel fá ágætis hraðauppleið að þá vildi boltinn hreinlega ekki ofan í körfuna.
KR héldu áfram að auka forustuna og voru 21 stigi yfir í lok þriðja leikhluta.
 
Fjórði leikhluti var frekar tíðinda lítill enda orðið nokkuð ljóst í hvað stefndi og fengu ungu leikmenn beggja liða nokkrar mínútur í lok leiksins.
 
Það stóð enginn leikmaður hjá KR uppúr því þetta var sigur magnaðrar liðsheildar. Öll tölfræði dreifist gríðarlega vel á milli byrjunarliðsins.
 
Stigahæstar hjá Haukum: Siarre Evans 25 stig/17 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12 stig/6 fráköst/7 stolnir boltar.
 
Stigahæstar hjá KR: Sigrún Sjöfn Ámundardóttir 22 stig/9 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 16 stig/4 fráköst, Helga Einarsdóttir 12 stig/8 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 11 stig/11 fráköst/ 5 stolnir boltar, Patechia Hartman 10 stig/7 fráköst/9 stoðsendingar.
 
Leikmaður leiksins: Byrjunarlið KR
 
 
Myndasafn úr leiknum eftir Tomasz Kolodziejski
 
Umfjöllun: K. Bergmann
 
Fréttir
- Auglýsing -