HomeFréttirPálmi Sævars: Vorum aðeins of stressaðir

Pálmi Sævars: Vorum aðeins of stressaðir

Pálmi Sævarsson, þjálfari Skallagríms, var gífurlega svekktur með úrslitin eftir fínan leik sinna manna í Garðabænum í kvöld.  Skallagrímur mætti á erfiðan útivöll og þóttu óheppnir að fara ekki með sigur en það eru ekki mörg lið á landinu sem geta leikið það eftir þessa dagana.  
 
 

“Já, við verðum bara að læra að klára þessa leiki.  Við eigum bara að klára þennan leik, erum bara klaufar.  Stjarnan var frábær, frábær leikur, tvö flott lið.  Ég veit það ekki, mér fannst við bara ragir.  Við þurfum að læra að vera sigurvegarar, spila eins og sigurvegarar.  Við bárum kannski of mikla virðingu fyrir þeim í restina.  Flottar 39 mínútur en svo bara missum við dampinn.  Við áttum tækifæri til þess að jafna þetta eða vinna þetta í restina en vorum aðeins of stressaðir til að ná að klára þetta”. 

 

Það voru nokkur atriði sem leikmenn Skallagríms munu eflaust fara sjálfir yfir á næstu dögum sem hefðu líklega geta breytt gangi leiksins.  Annar af þeirra stigahæstu mönnum spilaði aðeins 27 mínútur í leiknum vegna villuvandræða og þeir gáfu Stjörnunni víti og boltan á ögurstundu.  

 

“Á ögurstundu þá þurfa menn að halda ró sinni og taka skynsamar ákvarðanir, við gerðum það alls ekki í restina núna.  Þetta var hörkuleikur, séns á að vinna þetta og bara drullusvekkjandi að vera dottinn út”.  

 

[email protected]

Mynd úr safni/ Ómar Örn

 

Fréttir
- Auglýsing -