10 – Evan Turner
Þegar Andre Iguodala var settur í skipti hjá 76ers var búist við að Turner yrði aðal maðurinn. Hann hefur ekkert átt neitt slæmt tímabil (13,5 stig og 7,1 frákast) en þrátt fyrir það hefur hann fallið í skuggann af Jrue Holiday sem hefur tekið sér stöðu sem aðal maðurinn í „Philly“ sér í lagi þar sem að Andrew Bynum hefur enn ekki klætt sig í treyju 76ers manna.
9 – Bradley Beal og Austin Rivers
Mikið var ætlast til af þessum tveimur félögum þar sem þeir eru báðir hrikalega hæfileikaríkir sem og vegna þeirra einstaka ástands sem hefur komið upp í kringum þá. Báða leikmenn vantar stórt púsl í leik síns liðs þar sem að bæði vantar Eric Gordon í Hornets og John Wall í Wizards. Einn myndi ætla að með þessa tvo kappa í burtu myndi myndast nógu mikið svigrúm til að blómstra sem leikmaður en svo hefur raunin ekki verið.
Beal hefur í raun spilað fyrstu leikina af tímabilinu með hangandi hendi en upp á síðkastið hefur hann sýnt frumkvæði og er einbeittari í að finna sitt skot. Þrátt fyrir það er hann ekki að skjóta nema um 32% og var því fleygt fram að hann væri orðinn hálf þunglyndur yfir skelfilegum leik sínum.
Rivers hefur verið að aðlagast bakvarðarstöðunni en hann hefur ekki verið að leysa þá stöðu hingað til. Hann er að gefa 3,4 stoðsendingar að meðaltali og tapaðir boltar eru komnir niður í 2. Hann er farinn að færast nær því að vera óeigingjarn en það mætti segja að það væri neikvætt því fram til þessa var talið að drápseðlið og lagni hans til að skora körfur væri það sem færði honum brauð á borðið.
8 – C.J. Miles
Það bjuggust flestir við að Miles myndi ganga beint inn í byrjunarlið Cavs, með mönnum á borð við Kyrie Irving og Dion Waiters, og hjálpa liðinu að verða samkeppnishæft í deildinni. Bæði Irving og Waiters hafa stigið all rækilega upp en Miles hefur hins vegar ekki gert það. Einn hress vestanhafs hafði á orði að hann hafi séð meira „action“ frá Miles í NBA 2K leiknum en af Miles holdi klæddur, klæddur Cavs treyjunni.
Miles var drjúgur þegar hann kom af bekknum hjá Jazz en hann hefur ekki sett nema einhverja 5 punkta að meðaltali og er með nýtingu sem enginn er stoltur af eða um 29%.
7 – Michael Beasley
Beasley hefur ekki fundið fjölina sína ef tekið er frá fyrra tímabilið hjá Timberwolves. Hann hefur sýnt það aftur og aftur í undirbúningstímabilinu hversu hæfileikaríkur hann er en leikur hans er svo bragðlaus og takmarkaður þegar komið er á stóra sviðið. 39% er það sem hann hefur sýnt okkur með Suns og er ekki merkilegt fyrir mann með hans getu en 11,5 stig að meðaltali segir allt sem segja þarf.
6 – Carlos Boozer
80 milljón dollarar er rosalega mikill peningur og þegar þú færð borgaðar svona summur þá finnst manni að leikur mannsins ætti að vera í takt við það. Það er svo aldeilis ekki og því fyrr sem að þessi leikmaður yfirgefur Bulls því betra (kv. Bitri Bulls aðdáandinn.)
Að öllu gamni slepptu þá hefur Boozer ekki staðist væntingar í Chicago og er langt frá því að vera tvennu maðurinn sem hann var hjá Jazz. Leikur Boozers er alltof óstöðugur og hann er engan veginn að hjálpa Rose-lausum Bulls mönnum sem eru þessa stundina bara að spila miðlungsgóðan körfubolta.
5 – Roy Hibbert
Hibbert gerði stóran samning við Pacers og maður hefði haldið að hungrið myndi vakna hjá mönnum sem gera svona samninga. Það er aldeilis ekki og hefur þessi leikmaður sem áður hreyfði sig eins og ballerína undir körfunni með mjúkum hreyfingum, þrátt fyrir að vera um 220 cm, orðinn hálf áhugalaus og virðist hafa gleymt því hvernig á að spila í kringum körfuna. Hibbert hefur þó og er enn nokkuð góður varnarmaður og hefur verið að skila um 3 vörðum boltum í leik.
4 – Jeremy Lin
„Linsanity“ þekkja allir og var þetta einungis blaðra sem svo sprakk. Hver sprengdi blöðruna? Jú Lin sjálfur. Pressan sem fylgdi því að rífa Houston liðið aftur upp á þann stall sem það var hefur greinilega orðið honum um megn og hefur leikur hans verið gífurlega misjafn. Með komu James Harden til liðsins var búist við að pressan myndi minnka á Lin en hann hefur þrátt fyrir það ekki sýnt neitt batamerki. Skotnýting hans er um 37% sem er ekkert skemmtiefni en þetta myndband er það þó.
3 – Pau Gasol
Gasol lýtur út fyrir að vera skrítni kallin í LA þessa stundina og í raun blettur í jöfnu Lakers að velgengni. Hann hefur orðið fyrir barðinu á aðdáendum og fjölmiðlum vestanhafs og hefur Kobe Bryant beðið hann opinberlega um að drífa sig í „stóru stráka buxurnar“. Hann hefur beðið um að fá að vera meira á blokkinni þar sem hann gæti gert einhvern usla en mun það einhvern tímann koma til framkvæmdar hjá D‘Antoni í sjö sekúndna eða minna sókninni hjá Lakers? Enginn veit.
Gasol hefur þó unnið tvo titla í Kobe/Pau tvíeykinu en þar sem að Steve Nash og Dwight Howard myndu rokka saman í „pick and roll“ er möguleiki á að Gaslo yrði hreinlega fyrir.
Gasol hefur aldrei afrekað minna inn á vellinum með 13,1 stig að meðaltali.
2 – Joe Johnson
Johnson á fjögur ár eftir af samningi sínum en þessi 31 árs kappi hefur ekki verið upp á sitt besta í leik Nets í vetur. Hann kastaði því sjálfur fram einhvern tímann að hann myndi hætta að einangra boltann og fara að dreifa honum betur í sóknarflæðið. Það hefur reynst vera algjört bull og hann virðist oft á tíðum tíndur og leikur hans er oft á tíðum tilraunakenndur. Hann hefur aldrei hitt verr eða um 39% og er að skila um 15 stigum í leik. Það má halda því fram að hann er enn að venjast því rennsli að vera þriðji valkostur hjá Nets en hann er enginn nýliði og ætti því að stíga upp og hjálpa Nets að komast lengra en þeir hafa farið.
1 – Andrew Bynum
Honum var gefið það tækifæri að vera lykilmaður í liði Lakers sem sótti fast á eftir meistarahring. Hann var þriðji maður á eftir Gasol og Bryant en var ekki mikils metinn. Hann fór til 76ers í Iguodala skiptunum og átti að vera aðalmaðurinn í Philly. Bynum er hins vegar mjög svo truflaður maður sem skýtur þriggja stiga skotum þegar hann vill sanna eitthvað í stað þess að láta á sér taka undir körfunni. Hann hefur þó ekki enn klæðst 76ers treyjunni inn á velli en þess í stað skellti hann sér í permanent, fór í keilu og meiddi sig aftur. Þegar þér finnst þú svo vera meiddur til eilífðar er ekki annað hægt en að verða fyrir vonbrigðum.




