HomeFréttirBragðdauft í Hafnarfirði

Bragðdauft í Hafnarfirði

Það verður seint sagt að sá körfuboltinn sem boðinn var upp í Schenker-höllinni í kvöld hafi verið merkilegur og þá sér í lagi fyrri hálfleikur. Kannski héldu Haukar að þetta yrði bara eins og léttur göngutúr en sprækir Sandgerðingar gerðu þeim erfitt fyrir. Haukar fögnuðu þó öruggum sigri og lyfta sér upp í 3. – 4. sæti og sitja þar ásamt Hetti.

Haukar leiddu allan fyrri hálfleikinn en voru mjög svo mistækir þá sér í lagi í sókninni. Varnarleikurinn var svo sem í lagi og beittu Haukar ýmsum varnarbrigðum og pressuðu allan fyrri hálfleikinn. Það verður ekki tekið af Reynismönnum að þeir börðust vel og eiga mikið hrós skilið fyrir framgöngu sína.

Byrjendamistök Haukamanna fóru mikið fyrir brjóstið á Pétri Guðmundssyni, þjálfara þeirra, og þegar hann hafði fengið endanlega nóg skipti hann öllum mönnum sínum útaf og setti fimm nýja inn. Haukar leiddu í hálfleik með átta stigum, 32-24.

Reynismenn komu mun beittari til leiks í seinni hálfleik og eins og hendi væri veifað  voru þeir búnir að minnka muninn í tvö stig. Haukar svöruðu með nokkrum góðum körfum en þá komu gestirnir aftur sterkir fram og minnkuðu nú muninn í eitt stig. Stemningin var öll með gestunum á þessu tímapunkti en það átti eftir að breytast. Það  kveikti aldeilis helling í Haukum að dæmd var óíþróttamannsleg villa á Ólaf Geir Jónsson og Haukar fengu fjögur stig úr sókninni. Haukar leiddu með 10 stigum eftir þriðja  leikhluta, 55-45.

Áfram héldu Reynismenn að hanga í Haukum og allan tímann var alveg möguleiki fyrir þá að komast yfir og innbyrgða sigur. Samt var tilfinningin þannig að Haukar myndu ekki gefa þetta frá sér og sú varð staðreyndin. Öll stemningin færðist yfir í leik Hauka síðustu fjórar mínútur leiksins og má segja að þeir hafi byrjað að spila almennilega. Rauðir fóru úr því að leiða með fimm stigum í það að leiða með 18 stigum og enduðu leikinn með þann mun 77-59.

Haukur Óskarsson var sjóðandi í sóknarleik Hauka, þá sér í lagi í seinni hálfleik, og skorði 28 stig. Aaryon Williams gerði 10 stig og 10 fráköst en senunni stal Emil Barja sem var með þrennu, 10 stig, 16 fráköst, 12 stoðsendingar, og bætti svo við 5 stolnum boltum.

Hjá Reyni var Guðmundur Auðunn Gunnarsson fremstur meðal jafningja með 13 stig og Reggie Dupree var með 10 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.

Tölfræði leiksins

Myndasafn frá leiknum

Fréttir
- Auglýsing -