Nú sem áður fyrr leitum við til snillingana hjá Dime Magazine, en í þetta skiptið hafa þeir birta lista yfir þá menn sem þeir telja líklegasta til þess að stíga skrefið stóra inní Hall of fame einhverntíman á lífsleiðinni. Leikmennirnir sem komu til greina í þessa umræðu þurftu að vera undir 25 ára og er listinn birtur með fyrirvara um að meiðsli eða afgerandi breyting á leik leikmanna komi til.
Það hafa eflaust margir skoðun á þessum málum en það er þó óhætt að fullyrða að leikmennirnir á þessum lista eiga það sameiginleg að vera stórkostlegir körfuknattleiksmenn. Við ætlum að birta hér einn leikmann á dag næstu fimm daga sem endar á þeim leikmanni sem Dime Magazine þykir líklegastur til þess að komast í frægðarhöllina.
Fyrsti maður á blað hjá Dime magazine er háloftafuglinn Blake Griffin. Blake Griffin vakti lukku aðdáenda NBA deildarinnar fljótlega eftir að menn sáu hann spila á undirbúningstímabilinu fyrir það sem átti að vera hans fyrsta ár í deildinni. Blake varð þó fyrir því óláni að meiðast illa á hnéskél strax í fyrsta leik. Hann sat allt tímabilið á bekknum en kom þeim mun sterkari til baka. Fyrsta árið hans í deildinni varð því annað árið hans, þá skoraði hann 22 stig að meðaltali í leik og hirti rúmlega 12 fráköst á leik. Hann var valinn nýliði ársins og hefur ekki snúið við síðan.
Eftir að Clippers fengu Chris Paul til liðs við sig hefur hugtakið “Lob City” loðað við ótrúlegan samleik þeirra félaga sem endar oftar en ekki með laglegri troðslu frá Griffin. Tölur Griffin hafa þó minnkað örlítið síðustu tvö tímabili. Smám saman hefur hann skorað minna og hirt færri fráköst, en hann hefur þó bætt varnarleikinn og er að stela um 1,4 bolta á leik.
Blake Griffin er að skora um 18 stig að meðaltali í leik á yfirstandandi tímabili, hirða 9 fráköst og verja tæpt skot á leik.
Það er aldrei hægt að fjalla um leikmann eins og Blake Griffin án þess að minnast á stórkostlega troðslur hans í gegnum tíðina. Hér fyrir neðan má sjá brot úr leik Clippers við New York hér um árið þar sem Blake Griffin fer illa með Timothy Mozgov og Danillo Gallinari.
Hér má svo sjá mjög eftirminnilega troðslu Griffin á Kendrick Perkins en margir voru á því að þetta væri besta troðsla síðasta tímabilis.




