HomeFréttirHetjuleg barátta Fjölnis dugði ekki til

Hetjuleg barátta Fjölnis dugði ekki til

Stjarnan fékk Fjölni í heimsókn í Ásgarð í kvöld í Dominosdeild karla og höfðu á endanum betur þrátt fyrir hetjulega baráttu Fjölnismanna.
 
Unglömbin í Fjölni leiddu allan fyrsta leikhluta allt til enda hans en liðin höfðu skorað jafnmikið eða 23 stig hvor þegar honum var lokið. Bæði liðin tefldu fram nýjum leikmönnum, Isaac Miles hjá Fjölni og Jarrid Frye hjá Stjörnunni. Væntanlega höfðu Fjölnismenn ekki fengið Chris Smith löglegan fyrir leikinn en hann sat í borgaralegum klæðum á bekk Fjölnismanna. Án hans var hæð Fjölnismanna ekki mikil og ekki bætti úr skák að Jón Sverrisson meiddist þegar um þrjár mínútur lifðu fyrsta leikhluta og kom ekkert meira við sögu hjá gestunum.
 
Stjarnan nýtti sér hæðar muninn vel og áttu auðvelt með að koma sér vel fyrir í teig Fjölnis. Að sama skapi fengu Fjölnismenn ekki mikið svigrúm til að athafna sig í teig heimamanna og treystu þeim mun meira á þriggja stiga skot sín sem duttu vel framan af.
 
Stjarnan leiddi í hálfleik með níu stigum 49-40.
 
Grafarvogspiltar voru komnir í villuvandræði í þriðja leikhluta og misstu þeir Gunnar Ólafsson útaf með fimm villur. Gunnar hafði verði drjúgur fyrir Fjölni og því mikill missir af honum útaf. Á sama tíma var Jovan Zdravevski óstöðvandi fyrir Stjörnuna og nálgast sitt fyrra form.
 
Það munaði sjö stigum á liðunum eftir þriðja leikhluta og mestur varð munurinn 13 stig í þeim fjórða. Stjörnumenn héldu gestunum í þægilegri fjarlægð frá sér allan fjórða leikhluta og unnu á endanum átta stiga sigur, 95-87.
 
Hjá Stjörnunni var Jovan Zdravevski stigahæstur með 21 stig og 4 fráköst og Jarrid Frye bætti við 18 stigum og 7 fráköstum.
 
Hjá Fjölni var Isaac Miles með 19 stig og 11 fráköst. Gunnar Ólafsson gerði 17 stig og tók 5 fráköst og átti tilþrif leiksins þegar hann varði sniðskot Kjartans Atla Kjartanssonar með svo miklum látum að einn dómari leiksins, Davíð Tómasson, fékk byltu og féll um skilti.
 
Fréttir
- Auglýsing -