HomeFréttirValur sigrar þökk sé magnaðs fyrsta leikhluta

Valur sigrar þökk sé magnaðs fyrsta leikhluta

Valur fékk Fjölni í heimsókn í Vodafonehöllina í kvöld í 17. umferð Dominosdeildarkvenna. Val var mikið í mun um að vinna leikinn í kvöld og færa ekki aðeins þjálfara sínum Ágústi Björgvinssyni, heldur líka liðsfélaga sínum Signýju Hermannsdóttur, sigur í afmælisgjöf. Þrátt fyrir að hafa fengið sigur í afmælisgjöf þá er Ágúst örugglega ekkert alltof kátur með sína leikmenn í kvöld. Því þrátt fyrir magnaða byrjun var Valur í tómu tjóni í næstu þremur leikhlutum og ef leikurinn hefði verið 41 mínútur þá er ég sannfærður um að Fjölni hefði tekist að stela sigrinum. En lukkulega fyrir Val er leikurinn 40 mínútur og tókst þeim því að halda hann út og vinna 71-67.
 
Byrjunarlið Vals: Guðbjörg Sverrisdóttir, Jaleesa Butler, Hallveig Jónsdóttir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir.
 
Byrjunarlið Fjölnis: Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir, Fanney Lind Guðmundsdóttir, Bergdís Ragnarsdóttir, Britney Jones og Eva María Emilsdóttir.
 
Valur byrjaði að miklum krafti og voru 11-2 yfir eftir þriggja mínútna leik. Fjölnisstúlkur voru einhvern veginn ekki búnar að kveikja á því að leikurinn væri byrjaður og voru ekki einu sinni í vörn, hvað þá að spila hana. Ásamt lélegum varnarleik gekk ekkert upp í sókninni hjá Fjölni, klúðruðu hverju skotinu á fætur öðru. Valur var líka að spila öfluga vörn sem byrjaði á stífri pressu. Valur leiddi því 27-12 eftir fyrsta leikhlutann þar sem Guðbjörg Sverrisdóttir fór mikinn og skoraði 9 stig og átti 4 stoðsendingar og leit allt út fyrir að þær myndu gjörsamlega kafsigla Fjölni.
 
Í öðrum leikhlutanum mátti strax sjá á Valsstúlkum að þær töldu sigurinn vera kominn í höfn, engan veginn sama yfirbragð með þeim né ákefð. Britney Jones setti í fimmta gírinn og skoraði 14 stig þar sem hún keyrði trekk í trekk inn í teig. Valur réð ekkert við hana og tókst henni að koma Fjölni í trú um það að leikurinn væri alls ekki búinn og að þær ættu vel möguleika ennþá. Þó að Fjölni hafi aðeins tekist að minnka muninn um þrjú stig í hálfleik, í 42-30, þá var allt annað að sjá til þeirra.
 
Fjölnir hélt áfram leiknum í fullri trú um að þær ættu möguleika og létu engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að ná aðeins að minnka muninn um eitt stig í þriðja leikhlutanum.
 
Britney Jones hélt áfram að keyra að körfunni sem skilaði vel af sér fyrir Fjölni, ef hún fór ekki sjálf upp þá var Bergdís Ragnarsdóttir opin í sniðskotið. Jones skoraði 15 stig í leikhlutanum og var ekki langt frá því að ræna sigrinum fyrir Fjölni. Í rauninni grátlega nálægt því, því þrívegis á seinustu fjórum mínútum leiksins þá gaf hún frá sér sniðskot til að gefa á samherja sem var í örlítið betri aðstöðu en hún en þær náðu ekki að nýta þau færi. Valsstúlku virkuðu nokkuð taugaóstyrkar á endasprettinum enda misstu þær Kristrúnu Sigurjónsdóttur og Rögnu Margréti Brynjarsdóttur útaf með 5 villur en Jaleesa Butler og Guðbjörg Sverrisdóttir kláruðu leikinn á vítalínunni með því að setja hvor þrjú of fjórum vítaskotum sínum niður á loka mínútunni.
 
Stigahæstar hjá Val voru: Guðbjörg Sverrisdóttir 23 stig/4 fráköst/5 stoðsendingar, Jaleesa Butler 22 stig/15 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 16 stig.
 
Stigahæstar hjá Fjölni voru: Britney Jones 41 stig/7 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 6 stig/9 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 5 stig/9 fráköst.
 
Leikmenn leiksins: Jaleesa Butler og Guðbjörg Sverrisdóttir.
 
 
 
 
Umfjöllun/ K. Bergmann
 
Fréttir
- Auglýsing -